Lýsing
Í hverjum pakka eru 2 stk. og heildarþyngd er 380 g. Hér í Matlandinu seljum við 4 pakka í einu með samtals 8 bjúgum. Þetta er efni í 4 máltíðir fyrir tvo.
Soðin vara sem þarf bara að hita upp í vatni. Bjúgun eru frosin.
Gæðakjöt frá Bakkakoti
Bjúgun eru unnin úr rekjanlegu hráefni í takmörkuðu magni. Hráefnið í bjúgun er frá bænum Bakkakoti í Stafholtstungum í Borgarfirði þar sem bændurnir Sindri Sigurgeirsson og Kristín Kristjánsdóttir nostra við sitt fé. Ærnar flokkuðust allar í FR3-flokkinn sem er mjög góður gæðaflokkur. Hæfilega feitt kjöt og ærnar í góðum holdum.
Ánum var slátrað núna í lok febrúar og kjötið hefur aldrei frosið. Sláturhús Vesturlands í Brákarey verkar kjötið og Sigurður Haraldsson kjötiðnaðarmeistari í Pylsumeistaranum býr til bjúgun eftir sinni uppskrift. Sigurður var útnefndur Kjötmeistari Íslands árið 2022.
Sindri og Kristín, bændur í Bakkakoti.
Innihald:
Kindakjöt: 98%
Salt
Pipar
Bindiefni
Engir ofnæmis- eða óþolsvaldar
Innihald: Kindakjöt
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Bakkakoti í Borgarfirði
Framleiðandi: Kjöt- og Pylsumeistarinn ehf. í samvinnu við Matfélagið ehf.
Sláturhús nr. A997 – Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.