Lýsing
Anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.
Mjaðmasteik. Kílóverð: 6.980 kr. Ágætt er að miða við 200-250 g á mann í aðalmáltíð.
Kælivara.
Hreinræktaður Aberdeen Angus
Matland býður til sölu kjöt af hreinræktuðu Aberdeen Angus-nauti frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.
Gripurinn var látinn hanga í 14 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.
Angus með yfirburði
Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.
Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.
Eftirfarandi kjarnhita er gott að miða við þegar nautakjöt er eldað:
Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Mjaðmasteik af angusnauti
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.