Skip to content Skip to footer

Pichañasteik frá Hvammi – Ölnaut

2.434 kr.4.998 kr.

Pichanasteik frá Hvammi í Ölfusi. Uppáhaldssteik Brasilíumanna! Naut sem alið var á bjórhrati og fékk ekta mjöð síðustu mánuðina í eldinu.

Steikurnar eru á bilinu 340-700 g á þyngd. Tvær í pakka. Þú velur það sem hentar þér í fellivalinu hér undir.  Kílóverð: 7.160 kr.

Kjötið er frosið og fullmeyrnað. Takmarkað magn.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 daginn eftir kaup. Afgreiðum samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:29235

Lýsing

Fyrsta flokks ungnautakjöt frá Hvammi í Ölfusi. Íslenskt gæðanaut!

Pichana-steik. Kílóverð: 7.160 kr.

Frystivara.

Bændurnir

Í Hvammi búa bændurnir Pétur Benedikt Guðmundsson og Charlotte Clausen. Sonur þeirra Davíð Clausen starfar í kjötiðnaði og sér um nautaeldið.

Nautin í Hvammi eru alin í rúmgóðum stíum og fá bjórhrat ásamt íslensku heyi alla sína ævi. Þess vegna kalla bændurnir þau „Ölnaut“. Síðustu þrjá mánuðina fyrir slátrun fá nautin alvöru bjór sem hjálpar til við að fita þau. Bjórinn kemur úr bjórverksmiðju og er ekki almenn söluvara. Hvert naut fær á bilinu 1-2 lítra af bjór á dag en hann er blandaður byggi sem ræktað er á bænum.

Bændurnir í Hvammi; Davíð, Pétur og Charlotte.

Davíð, sem vinnur sem kjötiðnaðarmaður hjá Ferskum kjötvörum í aðalstarfi, hefur þróað nautaeldið í Hvammi eftir veru sína á Hvanneyri. Hann gefur bolunum bjórhrat í eldinu og síðustu mánuðina fá þeir ekta mjöð til að gæða sér á. Útkoman er frábært kjöt og hamingjusamir gripir.


Nautin í Hvammi í Ölfusi fá gott atlæti og eru í rúmgóðum stíum. Myndir / TB

Hvernig á að elda Pichanasteik?

Matland mælir með að grilla þessa þjóðarsteik Brasílíumanna á snarpheitu kolagrilli. Það er smekksatriði hvað fólk vill hafa fituröndina þykka en það má alveg þynna hana niður í 1 cm ef vill.

Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið. Mikilvægt er að taka steikina út úr kæli a.m.k. hálftíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Berið lítilsháttar olíu á steikina og saltið og piprið eftir smekk. Grillið fituröndina fyrst í stutta stund en setjið svo á óbeinan hita út í jaðrana á grillinu (með fituna sem lengst frá eldinum til að forðast íkveikju). Þar sem fitulagið er eldfimt þarf að hafa augun á grillinu. Hafið kjötið í jöðrunum í nokkrar mínútur og snúið. Klárið steikina svo inni á grillinu í lokin. Mælt er með því að nota kjöthitamæli og hætta þegar hann sýnir 52°C fyrir medium-rare. Hvílið steikina í 5-7 mínútur eftir eldun áður en hún er borin fram. Skerið í t.d. 1-2 cm sneiðar og hafið fituröndina efst. Brasilíumenn eru frægir fyrir að þræða steikina í skeifu á prjóna og grilla þannig. Endilega prófið það!

Við grillun er fylgt sömu ráðum en mikilvægt að nota kjöthitamæli til að fylgjast með hitastiginu. Munið að steikin heldur áfram að eldast í hvíldinni og því ráðlegt að hætta grillun aðeins áður en æskilegu kjarnhitastigi er náð.

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Hvammi er unnið og pakkað hjá Ferskum kjötvörum í Síðumúla í Reykjavík.

Frystivara.

Innihald: Ungnautakjöt af holdablendingum – Pichanasteikur
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Hvammi í Ölfusi
Framleiðandi: Ferskar kjötvörur ehf.
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Picanha

340 g, 384 g, 400 g, 430 g, 436 g, 440 g, 444 g, 456 g, 460 g, 476 g, 488 g, 500 g, 526 g, 534 g, 534 g, 566 g, 572 g, 580 g, 678 g, 694 g, 698 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Pichañasteik frá Hvammi – Ölnaut”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…