Skip to content Skip to footer

Mínútusteikur frá Hvammi

3.725 kr.3.842 kr.

Mínútusteikur af ungri holdablendingskvígu frá Hvammi í Ölfusi. Skrokkurinn fékk að hanga í 14 daga sem þýðir meiri meyrni. Nokkrar steikur í pakka sem búið er að banka. Henta sérlega vel á grillið eða pönnuna.

Þú velur þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Kílóverð: 6.490 kr.

Kjötið er frosið og fullmeyrnað. Takmarkað magn.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup. Ef pantað er fyrir hádegi þá afhendum við samdægurs. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , Vörunúmer:38833

Lýsing

Fyrsta flokks kjöt af holdablendingskvígu frá Hvammi í Ölfusi. Vel fitusprengt og fallegt kjöt sem fékk að hanga í 14 daga fyrir verkun. Þyngdin á skrokknum var rúm 320 kg.

Mínútusteikur. Kílóverð: 6.490 kr.

Frystivara.

Bændurnir

Í Hvammi búa bændurnir Pétur Benedikt Guðmundsson og Charlotte Clausen. Sonur þeirra Davíð Clausen starfar í kjötiðnaði og sér um nautaeldið.

Bændurnir í Hvammi; Davíð, Pétur og Charlotte.

Davíð, sem vinnur sem kjötiðnaðarmaður hjá Ferskum kjötvörum í aðalstarfi, hefur þróað nautaeldið í Hvammi eftir veru sína á Hvanneyri.


Ungnautin í Hvammi í Ölfusi fá gott atlæti og eru í rúmgóðum stíum. Myndir / TB

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Hvammi er unnið og pakkað af Villt og alið á Hellu.

Frystivara.

Innihald: Kvígukjöt, Ungnautakjöt, UNR-3+, mínútusteikur
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Hvammi í Ölfusi
Framleiðandi: Villt og alið
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Mínútusteik

542 g, 574 g, 582 g, 592 g, 600 g, 630 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Mínútusteikur frá Hvammi”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…