Lýsing
Hágæðavara frá Glitstöðum og handverkssláturhúsinu Brákarey í Borgarnesi. Kjötið er sérmeyrnað en það fékk að hanga í 7 daga eftir slátrun. Við það verður kjötið meyrara en léttist að sama skapi þar sem vökvi gufar upp úr því.
Rekjanlegt íslenskt hráefni í takmörkuðu magni með lágmarks kolefnisspor.
Eldunarleiðbeiningar
Það er smekksatriði hvernig fólk kýs að elda lambakjöt. Kjötið frá Glitstöðum hefur fengið að hanga í sjö daga og er fullmeyrnað. Skanka og bógleggir eru kjörnir til hægeldunar. Mælt er með því að nota kjöthitamæli við steikingu eða grillun.
Eftirfarandi kjarnhita er gott að miða við þegar lambakjöt er tekið út úr ofni:
Lambakjöt – lítið steikt (medium rare) = 65°
Lambakjöt – meðal steikt (medium) = 70°
Lambakjöt – gegnsteikt (well done) = 75°
Munið að láta kjötið hvíla eftir að það er tekið út úr ofni í a.m.k. 10 mínútur.
Hefur þú prófað að hægelda lambalæri? Sjáðu umfjöllun hér.
Bændurnir
Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum. Mynd / TB
Lambakjötið er frá bænum Glitstöðum í Borgarfirði þar sem er rekið myndarlegt blandað bú með kýr og kindur. Mjólkurframleiðsla með 35 kúm er aðal-atvinnugreinin en á bænum eru líka 150 kindur. Að vera með 35 kýr í mjólkurframleiðslu þýðir að annað eins er í fjósi þ.e. geldkýr, kvígur og kálfar. Að jafnaði eru um 80 gripir í fjósinu sem fá allir sérlega gott atlæti. Bændur á Glitstöðum eru hjónin Eiður Ólason og Guðrún Sigurjónsdóttir.
Varan
Kælivara.
Innihald: Úrbeinaðir grillskankar.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Glitstöðum í Borgarfirði.
Framleiðandi: Brákarey í Borgarnesi.
Sláturhús nr. A997 – Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.