Skip to content Skip to footer

Flank frá Hvammi – Ölnaut

3.678 kr.4.397 kr.

Flank frá Hvammi í Ölfusi. Fræbær steik til að grilla og skera þvert á vöðvaþræðina í þunnar sneiðar. Naut sem alið var á bjórhrati og fékk ekta mjöð síðustu mánuðina í eldinu.

Steikurnar eru á bilinu 440-940 g á þyngd. Þú velur það sem hentar þér í fellivalinu hér undir.  Kílóverð: 5.990 kr. 

Kjötið er frosið. Takmarkað magn.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup. Ef pantað er fyrir hádegi þá afhendum við samdægurs. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:29294

Lýsing

Fyrsta flokks ungnautakjöt frá Hvammi í Ölfusi. Íslenskt gæðanaut!

Flank. Kílóverð: 5.990 kr.

Frystivara.

Bændurnir

Í Hvammi búa bændurnir Pétur Benedikt Guðmundsson og Charlotte Clausen. Sonur þeirra Davíð Clausen starfar í kjötiðnaði og sér um nautaeldið.

Nautin í Hvammi eru alin í rúmgóðum stíum og fá bjórhrat ásamt íslensku heyi alla sína ævi. Þess vegna kalla bændurnir þau „Ölnaut“. Síðustu þrjá mánuðina fyrir slátrun fá nautin alvöru bjór sem hjálpar til við að fita þau. Bjórinn kemur úr bjórverksmiðju og er ekki almenn söluvara. Hvert naut fær á bilinu 1-2 lítra af bjór á dag en hann er blandaður byggi sem ræktað er á bænum.

Bændurnir í Hvammi; Davíð, Pétur og Charlotte.

Davíð, sem vinnur sem kjötiðnaðarmaður hjá Ferskum kjötvörum í aðalstarfi, hefur þróað nautaeldið í Hvammi eftir veru sína á Hvanneyri. Hann gefur bolunum bjórhrat í eldinu og síðustu mánuðina fá þeir ekta mjöð til að gæða sér á. Útkoman er frábært kjöt og hamingjusamir gripir.


Nautin í Hvammi í Ölfusi fá gott atlæti og eru í rúmgóðum stíum. Myndir / TB

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Hvammi er unnið og pakkað hjá Ferskum kjötvörum í Síðumúla í Reykjavík.

Frystivara.

Innihald: Ungnautakjöt – Flatsteik – flank
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Hvammi í Ölfusi
Framleiðandi: Ferskar kjötvörur ehf.
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Flank

446 g, 476 g, 484 g, 512 g, 522 g, 522 g, 524 g, 532 g, 542 g, 558 g, 562 g, 570 g, 602 g, 610 g, 614 g, 616 g, 620 g, 620 g, 636 g, 664 g, 666 g, 672 g, 708 g, 722 g, 734 g, 752 g, 832 g, 850 g, 944 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Flank frá Hvammi – Ölnaut”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…