Skip to content Skip to footer

Pichana af grasfóðruðum Angus frá Holti

Price range: 3.276 kr. through 4.276 kr.

Pichanasteik af Angus-holdablendingum frá bænum Holti í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu. Þjóðarsteik Brasilíumanna! Ein steik í pakka, þyngdir á bilinu 380 – 600 grömm.

Gripir sem voru eingöngu grasfóðraðir. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga sem gerir kjötið meyrara. Kjötmeistararnir hjá Villt & alið á Hellu skáru kjötið, snyrtu og pökkuðu.

Frystivara.

Kílóverð er 7.690 krónur.  Veldu þá þyngd sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:55420

Lýsing

Pichana-steik. Kílóverð: 7.690 kr. Frystivara.

Bændurnir

Í Holti í Álftaveri í Skaftárhreppi reka tvær kynslóðir blandað bú með mjólkurkýr, sauðfé og holdagripi ásamt hrossum. Ábúendur í félagsbúinu Holti eru Konný Sif Gottsveinsdóttir, Þorbergur Jónsson, Gottsveinn Eggertsson og Svana Sigurjónsdóttir.

Holdakýr og kvígur ganga úti fyrir opnu allt árið um kring og holdagripirnir eru einungis fóðraðir á grasi/heyi. Mynd / Úr einkasafni

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af holdablendingum frá bænum Holti í Álftaveri og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Pichana-steik.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Pichana, þyngdir

382 g, 396 g, 404 g, 410 g, 418 g, 426 g, 458 g, 462 g, 474 g, 530 g, 544 g, 552 g, 556 g, 568 g, 594 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Pichana af grasfóðruðum Angus frá Holti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…