Lýsing
Hreint anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.
Sirloin. Kílóverð: 5.490 kr. Ágætt er að miða við 200-250 g á mann í aðalmáltíð.
Frystivara.
Hreinræktaður Aberdeen Angus
Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktaðri Aberdeen Angus kvígu frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.
Gripurinn var látinn hanga í 18 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.
Angus með yfirburði
Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.
Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Það er álit sérfræðinga að aukin blöndun Angus-erfðaefnis inn í íslensku ræktunina geti gert íslenska nautakjötsframleiðslu að arðbærari atvinnugrein en hún er í dag. Kjötgæði munu batna og varan þannig betur í stakk búin að mæta samkeppni að utan.
Hvernig er best að elda sirloin-steik?
Það er ýmist hægt að heilsteikja sirloin eða hluta í steikur. Skerið kjötið í þá þykkt af sneiðum sem henta þínum smekk.
Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.
Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið, 2-3 dagar er mátulegt. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.
Einföld aðferð við að elda sirloin í heilum bitum er að hefja steikingu á mjög heitri pönnu, brúna kjötið með því að steikja upp úr smjöri og olíu. Setjið síðan í ofn við 180°C þar til kjarnhiti nær 55-60°C. Það er líka ágætt að hægelda á minni hita, t.d. 140°C en þá er eldunartíminn vitaskuld lengri. Vefjið kjötið inn í álpappir svo hitinn haldist að því og setjið viskustykki yfir. Látið kjötið hvíla við stofuhita í 10 mínútur áður en það er skorið í sneiðar.
Kjarnhiti nautgripakjöts
Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75°
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Sirloin af anguskvígu
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.