Skip to content Skip to footer

Lambahryggur frá Glitstöðum – sérmeyrnaður

9.157 kr.13.319 kr.

Matland hefur til sölu fyrsta flokks lambahryggi frá fyrirmyndarbúinu Glitstöðum í Borgarfirði. Mjúkt og meyrt lambakjöt sem hefur fengið að hanga í sjö daga. Þú finnur muninn.

Lambakjötið er frosið og er afhent daginn eftir kaup, síðdegis. Kílóverð 5.490 kr.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir í verslun Pylsumeistarans á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup, síðdegis. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Veldu hér undir þá stærð sem hentar þér.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:30174

Lýsing

Hágæðavara frá Glitstöðum og handverkssláturhúsinu Brákarey í Borgarnesi. Kjötið er sérmeyrnað en það fékk að hanga í 7 daga eftir slátrun. Við það verður kjötið meyrara en léttist að sama skapi þar sem vökvi gufar upp úr því.

Rekjanlegt íslenskt hráefni í takmörkuðu magni með lágmarks kolefnisspor.

Eldunarleiðbeiningar

Það er smekksatriði hvernig fólk kýs að elda lambakjöt. Kjötið frá Glitstöðum hefur fengið að hanga í sjö daga og er fullmeyrnað. Tímalengd eldunar fer eftir hita og stærð á hryggnum. Mælt er með því að nota kjöthitamæli við eldunina.

Eftirfarandi kjarnhita er gott að miða við þegar lambakjöt er tekið út úr ofni:

Lambakjöt – lítið steikt (medium rare) = 65°
Lambakjöt – meðal steikt (medium) = 70°
Lambakjöt – gegnsteikt (well done) = 75°

Munið að láta kjötið hvíla eftir að það er tekið út úr ofni í a.m.k. 10 mínútur.

Bændurnir


Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum. Mynd / TB

Lambakjötið er frá bænum Glitstöðum í Borgarfirði þar sem er rekið myndarlegt blandað bú með kýr og kindur. Mjólkurframleiðsla með 35 kúm er aðal-atvinnugreinin en á bænum eru líka 150 kindur. Að vera með 35 kýr í mjólkurframleiðslu þýðir að annað eins er í fjósi þ.e. geldkýr, kvígur og kálfar. Að jafnaði eru um 80 gripir í fjósinu sem fá allir sérlega gott atlæti. Bændur á Glitstöðum eru hjónin Eiður Ólason og Guðrún Sigurjónsdóttir.

Varan

Frystivara.

Innihald: Lambahryggur
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Glitstöðum í Borgarfirði.
Framleiðandi: Brákarey í Borgarnesi.
Sláturhús nr. A997 – Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Lambahryggur

1494 g, 1668 g, 1736 g, 1740 g, 1970 g, 2058 g, 2132 g, 2192 g, 2306 g, 2426 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Lambahryggur frá Glitstöðum – sérmeyrnaður”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…