Lýsing
Á Matlandi er boðið upp á áskrift að fisk og fiskréttum frá Sjávarbúrinu í Hafnarfirði. Úrvalið er breytilegt eftir vikum en við birtum alltaf matseðil næstu fjögurra vikna. Það getur komið fyrir að breytingar verði á milli vikna, m.a. vegna þess að vara sé uppseld eða ekki til. Þá áskilur Matland sér að skipta viðkomandi vöru út fyrir aðra.
Áskrift
Viðskiptavinir geta valið um að fá vikulegan fisk, á tveggja vikna fresti eða mánaðarlega. Við bjóðum fiskinn á sama verði á hverjum mánudegi, 3.570 kr. kílóið. Heimsending á höfuðborgarsvæðinu kostar kr. 1.350. Sendingar á afhendingarstaði Samskipa um allt land kosta kr. 1.950.
Fiskurinn er afhentur, keyrður heim til kaupenda eða á flutningastöð Samskipa á mánudögum. Fyrir utan höfuðborgarsvæðið er fiskurinn afhentur á þriðjudögum. Til þess að fá kassa næsta mánudag (þriðjudag utan höfuðborgarsvæðisins) þarf að gerast áskrifandi fyrir kl. 16 á föstudögum.
Hægt er að segja áskriftinni upp með stuttum fyrirvara inni á “Mínum síðum” á Matlandi. Það þarf að gera fyrir kl. 16 á föstudegi til að taka áskrift úr sambandi næsta mánudag.
Á Matland.is og á Facebook tilgreinum við “Fisk vikunnar” þannig að áskrifendur vita hvað er í vændum.
Athugið: Þegar mánudagar eru frídagar þá hnikast afhending á fisknum aftur til þriðjudags. Við tilkynnum það með fyrirvara.
Afhending á fisknum
Fiskurinn er afgreiddur á höfuðborgarsvæðinu eftir kl. 15.00 á hverjum mánudegi og á afgreiðslustöðvum Samskipa um allt land á þriðjudögum.
Matland afhendir mánudagsfiskinn í:
- Reykjavík. Matland á Hrísateig 47, eftir kl. 15.00 á mánudögum.
Matland sendir SMS þegar sendingin þín er tilbúin.
Þau sem kjósa heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu fá fiskinn sendan síðdegis sama dag eða um kvöldmatarleytið.
Samskip flytur fiskinn fyrir Matland út fyrir höfuðborgarsvæðið og afhendir á þriðjudögum á afgreiðslustöðvum sínum.
Varan
Upprunaland: Ísland
Pökkun og dreifing: Matland. Dreifing utan höfuðborgarsvæðisins er á vegum Samskipa.
Framleiðendur: Sjávarbúrið í Hafnarfirði