Lýsing
Afhending
Meðlætið afhendum við samdægurs, eða daginn eftir sé pantað seinni part dags, á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Matland sendir símaskilaboð (SMS) til kaupenda þegar vörurnar eru klárar til afhendingar. Heimsending líka í boði, verð 1.350 kr.
Þau sem búa utan höfuðborgarsvæðisins fá kassana senda með vöruflutningabílum Samskipa. Verð fyrir sendingu með innanlandsdeild Samskipa er 1.950 kr.
Framleiðendurnir
Bændur sem framleiða grænmetið eru innan vébanda Sölufélags garðyrkjumanna. Upplýsingar um innleggjendur hjá SFG er að finna hér.
Varan
Grænmetismeðlæti:
- Paprika frá Flúðajörfa, 1 stk.
- Agúrka frá Gufuhlíð, 1 stk.
- Tómatar frá Varmalandi, 4-5 stk.
- Rósasalat frá Hveratúni, 1 haus
Upprunaland: Ísland
Pökkun og dreifing: Matland. Dreifing utan höfuðborgarsvæðisins er á vegum Samskipa.
Framleiðendur: Bændur innan vébanda Sölufélags garðyrkjumanna. Upplýsingar um innleggjendur hjá SFG er að finna hér.
Afhendingarstaður: Matland, Hrísateig 47 í Reykjavík.