Lýsing
Á Matlandi er boðið upp á grænmetiskassa frá íslenskum bændum. Úrvalið er breytilegt eftir því hvað er til hverju sinni en við auglýsum innihald í hverjum kassa með fyrirvara. Oft á tíðum eru einhverjar vörur í kassanum sem ekki er almennt að finna í stórmörkuðum, t.d. vegna lítillar framleiðslu.
Afhending
Grænmetiskassa #2 verður dreift síðla fimmtudags (eftir kl. 15.00) á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Matland sendir símaskilaboð (SMS) til kaupenda rétt áður en kassarnir eru klárir til afhendingar. Við keyrum kassana út síðdegis og um kvöldið til þeirra sem óska eftir heimsendingu. Verð fyrir heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu er 1.350 kr.
Þau sem búa utan höfuðborgarsvæðisins fá kassana senda með vöruflutningabílum Samskipa. Kassarnir eru þá til afgreiðslu á föstudögum á afgreiðslustöðum Samskipa um allt land. Verð fyrir sendingu með innanlandsdeild Samskipa er 1.950 kr.
Framleiðendurnir
Við bjóðum Gunnar Bjarnason, Bio-bóndann í Litlu-Hildisey, velkominn til Matlands. Biobóndinn ræktar einungis lífrænt grænmeti og korn. Uppskera haustsins gaf af sér alls 10 yrki af lífrænum kartöflum og fjögur þeirra eru til sölu. Kartöflurnar eru flokkaðar í þrjár stærðir, allt frá smælki upp í stórar kartöflur. Bio-bóndinn útvegar Matlandi lífrænu kartöflurnar Levante, sem hann kallar Langa-Sela, í grænmetiskassa #1 árið 2025. “Við trúum því að við getum unnið með náttúrunni við að búa til hollan og góðan mat án þess að nota tilbúinn áburð eða eitur á plönturnar eða akrana,” segir Gunnar Bio-bóndi.
Bændur sem framleiða grænmeti í kassa #2 eru m.a. innan vébanda Sölufélags garðyrkjumanna. Upplýsingar um innleggjendur hjá SFG er að finna hér. Kartöflurnar koma frá Bio-bóndanum í Litlu-Hildisey, rófur frá Seljavöllum, smágúrkur og paprikur frá Sólskins og salatblanda er frá Lambhaga.
Áskrift borgar sig
Það er ódýrara að skrá sig í áskrift. Matland dreifir grænmetiskössum á Hellu, Hvolsvelli, Borgarnesi, Selfossi, Blönduósi, Egilsstöðum, Ísafirði, Siglufirði, Sauðárkróki, Dalvík, Vík í Mýrdal, Neskaupstað, Reykjanesbæ og á fimm afhendingarstöðum Pikkoló á höfuðborgarsvæðinu, í Breiddinni og Hæðasmára í Kópavogi, á Hlemmi, við Háaleitisbraut og í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Til þess að fá kassa afhenta þar þarf að skrá sig í áskrift. Það er auðvelt að breyta henni á „þínu svæði“ inni á vefnum okkar. Áskrift þarf að skrá fyrir kl. 15 á mánudögum til að fá kassa á fimmtudegi (miðvikudögum þegar fimmtudagur er rauður dagur) og föstudegi.
Áskrifendur geta líka nálgast kassann á afgreiðslustað Matlands á Hrísateig 47 og í Brauð & co í Vesturbæ, fengið heimkeyrslu eða sent með Samskipum um allt land. Sjá nánar um áskrift hér.
Hægt er að panta grænmetiskassa til kl. 15 á mánudögum.
Varan
Grænmetiskassi #2:
- Lífrænar „eldrauðar“ kartöflur frá Bio-bóndanum í Litlu-Hildisey, 1 kg
- Timian frá Ártanga, 1 pottur
- Kirsuberjatómatar frá Brún, 1 bakki
- Gulrætur frá Auðsholti, 500 g
- Smágúrkur frá Sólskins, 200 g, 1 bikar
- Paprika frá Sólskins, 1 stk.
- Salatblanda frá Lambhaga, 125 g, 1 bakki
- Rófa frá Seljavöllum, 1 stk.
Í kassanum eru sumar vörurnar í umbúðum og aðrar ekki. Matland vill lágmarka umbúðanotkun en stundum er grænmetið innpakkað til þess að varðveita gæði. Það getur komið fyrir að við tiltekt verði breytingar á innihaldi kassans, m.a. vegna þess að vara sé uppseld eða ekki til. Þá áskilur Matland sér að skipta viðkomandi vöru út fyrir aðra.
Upprunaland: Ísland
Pökkun og dreifing: Matland. Dreifing utan höfuðborgarsvæðisins er á vegum Samskipa.
Framleiðendur: Bio-bóndinn, Lambhagi, Seljavellir, Sólskins og bændur innan vébanda Sölufélags garðyrkjumanna. Upplýsingar um innleggjendur hjá SFG er að finna hér.
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna eftir kl. 15 á fimmtudag: Afhendingarstaður Matlands, Hrísateig 47 í Reykjavík.
Afhendingarstaðir fyrir þá sem eru í áskrift:
- Blönduós. Apótekarastofan, Aðalgötu 8. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Borgarnes. Verslunin Ljómalind, Brúartorgi 4. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Dalvík. Víkurkaup á Hafnartorgi. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum
- Egilsstaðir. Salt Bistro, Miðvangi 2-4. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Hella. Verslun Villt og alið, Þingskálum 4, Hellu. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Hvolsvöllur. Sveitabúðin Una, Austurvegur 4, Hvolsvelli. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Ísafjörður. Heimabyggð – kaffihús, Aðalstræti 22b, Ísafirði. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Kópavogur. Pikkoló við Byko í Breiddinni. Flutningskostnaður 850 kr. Afhent á fimmtudögum.
- Kópavogur. Pikkoló í Hæðasmára. Flutningskostnaður 850 kr. Afhent á fimmtudögum.
- Neskaupstaður. Nesbær, kaffihús. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Reykjanesbær. Blómaskúr Villu, Hafnargötu 54, Keflavík. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Reykjavík – Hlemmur. Pikkoló við Hlemm. Flutningskostnaður 850 kr. Afhent á fimmtudögum.
- Reykjavík – Vatnsmýri. Pikkoló við Grósku í Vatnsmýri. Flutningskostnaður 850 kr. Afhent á fimmtudögum.
- Reykjavík – Háaleitisbraut. Pikkoló. Flutningskostnaður 850 kr. Afhent á fimmtudögum.
- Reykjavík. Matland, Hrísateig 47. Enginn flutningskostnaður. Afhent á fimmtudögum.
- Reykjavík. Brauð & co í Vesturbæ, Melhaga 22. Eftir kl. 15 á fimmtudögum.
- Sauðárkrókur. Grána-bistro, Aðalgötu 21, Sauðárkróki. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Selfoss. GK-bakarí, Austurvegi 31b, Selfossi. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Siglufjörður. SR-byggingavörur, Vetrarbraut 14. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.
- Vík í Mýrdal. Aldan verslun, Sunnubraut 14-16. Flutningskostnaður 990 kr. Afhent á föstudögum.