Skip to content Skip to footer
-10%

Graflax – hálft flak

Original price was: 3.890 kr..Current price is: 3.500 kr..

Matland kynnir grafinn lax frá fyrirtækinu Hnýfli í Eyjafirði. Laxinn er úr landeldi úr Öxarfirði og þykir einstaklega bragðgóður.

Hálft flak vegur 500-550 grömm. (Athugið að heila flakið á myndinni er 1 kg að þyngd).

Verkunaraðferðir Hnýfils byggja á gamalgrónum hefðum og reynslu Davíðs Kristjánssonar reykmeistara. Allur fiskur er handflakaður og þurrkryddaður með kryddblöndu Hnífils.

Við afhendum graflaxinn í Matlandi á Hrísateig 47 daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum SMS-skilaboð þegar varan er tilbúin til afhendingar. Keyrum heim til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu sem það kjósa síðdegis og á kvöldin gegn vægu gjaldi. Sendum með Samskipum um allt land.

7 á lager

Lýsing

Nafnið Hnýfill merkir bát sem klýfur ölduna. Sá sem ryður brautina.

Faðir tveggja stofnenda hnýfils notaði orðið „hnýfill“ um menn sem honum líkaði vel við og þótti skara framúr.

Fiskverkunin Hnýfill var stofnuð i desember 1995 af Davíð Kristjánssyni reykmeistara, Ingveldi Jóhannesdóttur, Þorvaldi Þórissyni og Erni Smára Kjartanssyni.

Fyrsta starfsstöðin var að Skipatanga 35 á Akureyri. Markmið félagsins var reyking hverskyns sjávarafurða og sala þeirra, einnig saltaðra, þurrkaða og nýrra fiskafurða á nærmarkaði.

Gamaldags aðferðir við verkunina duga vel

Reykingin byggist á aðferðum sem þróaðar voru hjá Reykmiðstöðinni sem einn af stofnendum Hnýfils, Davíð átti og rak á árunum 1973-1985. Aðferðina má kalla gamaldags þar sem engin aukaefni eru notuð.

Eingöngu salt, vandað reykefni og þurrkun, sem sagt eingöngu náttúruleg efni, sem þótti mjög sérstakt á sínum tíma en eftirsóknarvert í dag.

Árið 1999 festu eigendur Hnýfils kaup á 480 m2 húsi að Óseyri og fluttu inn í húsnæðið um áramótin 2000. Húsnæðið var þá 15 ára gamalt, mjög vandað og snyrtilegt hús til allrar matvælavinnslu.

Vörurnar sem Hnýfill selur og framleiðir á smásölu- og mötuneytamarkað í reykvörulínunni eru: kofareyktur silungur, lax, og rauðmagi, hrefnukjöt en einnig reykt ýsa og þorskur. Fyrirtækið framleiðir talsvert af gröfnum laxi.

Innihaldslýsing

Lax, dill, salt, sykur, hvítur pipar og laukduft.

Næringargildi í 100 g.:

Orka 789 kJ/188 kkal
Fita 18 g
-þar af mettuð 2,1 g
Kolvetni 4,6 g
-þar af sykurtegundir 1,5 g
Trefjar 1,3 g
Prótein 19,3 g
Salt 3,4 g

Kælivara 

Geymist við 0-4°C.

Frekari upplýsingar

Grafinn lax

Hálft flak 500-550 g, Heilt flak 1000-1100 g

Þér gæti einnig líkað við…