Skip to content Skip to footer

Kálfabollur frá Stóra-Fjarðarhorni – 1 kg

4.990 kr.

Kálfabollur frá Stóra-Fjarðarhorni á Ströndum. 100% hreint kjöt og engin aukaefni. Fituinnihald 8-12%. Alls 28 bollur í pakkanum. Kálfakjöt er í eðli sínu mjúkt og ekki eins afgerandi í bragði og kjöt af fullorðnum nautum. Þú getur kryddað bollurnar að vild.

1 kg í pakkningu. Hver bolla er á bilinu 35-38 grömm.  

Alikálfarnir frá Stóra-Fjarðarhorni eru af íslensku kyni og voru rúmlega 7 mánaða á efsta degi. Kjötið fékk að hanga í viku fram að vinnslu. Meyrt og ljóst kjöt.

Bollurnar eru frosnar en þiðna fljótt. Lausfryst svo auðvelt að taka það magn úr pokanum sem á að elda hverju sinni. Gott að steikja á pönnu eða elda í ofni.

Kílóverð: 4.990 kr. 

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

14 á lager

Lýsing

Bændurnir

Bændurnir á Stóra-Fjarðarhorni leggja mikla áherslu á fóðrun sinna gripa sem er lykillinn að því að framleiða gæðakjöt. Gripirnir fá fyrsta flokks hey og aðgang að kjarnfóðri. Þau fá líka töluvert af umfram-grænmeti sem framleitt er á búinu.


Á á Stóra-Fjarðarhorni eru nokkur holdanaut sem eru engin smásmíði. Mynd / Guðfinna Lára.

Sjálfbærni og engin sóun

Bændurnir á Stóra-Fjarðarhorni taka þátt í verkefninu Loftslagsvænn landbúnaður sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur umsjón með ásamt fleirum. Í því felst að bændurnir gera loftslagsáætlun sem miðar að því að gera búskapinn sem mest sjálfbæran eins og hægt er og sóa sem minnstu.


Á Stóra-Fjarðarhorni búa bændurnir Ágúst Helgi Sigurðsson og Guðfinna Lára Hávarðardóttir með börnum sínum. Mynd / Ásta Þórisdóttir.

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af kálfabollum:
Orka 690 kJ/165 kkal
Fita 9,6 g
-þar af mettuð 4,7 g
– þar af ómettaðar 3,4 g
Kolvetni 0 g
-þar af sykurtegundir 0 g
Trefjar 0 g
Prótein 19,7 g
Salt 0,2 g

Varan

Kjötið frá Stóra-Fjarðarhorni er unnið á Hellu hjá kjötiðnaðarmönnum hjá fyrirtækinu Villt og alið ehf.

Kjöt- og pylsumeistarinn á Kársnesbraut í Kópavogi mótaði bollurnar, hraðfrysti og pakkaði fyrir Matland.

Frystivara.

Innihald: Kálfabollur, 8-12% fita. 28 stk.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Fjarðarhorni í Kollafirði á Ströndum.
Framleiðandi: Framleitt fyrir Matland af Kjöt & Pylsumeistaranum ehf., Kársnesbraut 112, 200 Kópavogi.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Kálfakótilettur - þyngdir

558 g, 618 g, 626 g, 634 g, 654 g, 672 g, 712 g, 740 g, 768 g, 772 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Kálfabollur frá Stóra-Fjarðarhorni – 1 kg”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…