Skip to content Skip to footer

Ketóhakk (20-25%) Angus frá Gunnbjarnarholti

7.975 kr.

Angus ungnautahakk – ketóhakk – með 20-25% fitu af stórum holdanautum frá Fjölskyldubúinu Gunnbjarnarholti. 5 pk x 500 g = 2,5 kg. Pakkarnir eru flatir og staflast vel í frysti. Engin íblöndunarefni. Mjög fituríkt hakk sem unun er að borða – hrein orka!

Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Frystivara.

5 pk x 500 g = 2,5 kg. Kílóverð er 3.190 krónur. Heilarverð fyrir pakkann er 7.975 kr.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

28 á lager

Lýsing

Angus ungnautakjöt frá Fjölskyldubúinu Gunnbjarnarholti.

Ungnautahakk, fituríkt, 20-25% fituinnihald. Kílóverð: 3.190 kr. Frystivara.

Arnar Bjarni Eiríksson og Berglind Bjarnadóttir voru kornung þegar þau hófu búskap árið 1988 með um 20 kýr. Á jörð þeirra hefur verið stundaður kúabúskapur síðan 1789 af sömu fjölskyldu, forfeðrum Arnars í sjö ættliði. Uppbyggingin hefur verið mikil og nú áratugum síðar hafa þau ásamt fjölskyldu sinni byggt yfir um 500 gripi í Gunnbjarnarholti, þar af um 230 mjólkandi kýr í einu fullkomnasta fjósi landsins. Fyrir nokkru hófu þau markaðssetningu á mjólkurvörum frá Gunnbjarnarholti undir heitinu Hreppamjólk en Margrét dóttir þeirra fer fyrir þeim hluta starfseminnar á búinu.

Fjósið í Gunnbjarnarholti er engin smásmíði. /Myndir úr einkasafni.

Velferð kúnna er í fyrirrúmi í fjósinu í Gunnbjarnarholti og þess gætt að kýrnar njóti besta atlætis og aðbúnaðar sem völ er á. Í hluta byggingarinnar er mjólkurbú þar sem m.a. er framleidd neyslumjólk, skyrdrykkir, jógúrt og rjómi. Við veginn neðan við fjósið er lítil verslun með sjálfsölum þar sem hægt er að kaupa mjólkurvörur frá búinu, s.s. Hreppamjólk, skyrdrykki og ís. Kjötið frá Gunnbjarnarholti, sem fæst á Matlandi, er af holdablendingum í lítilli hjörð sem bændurnir hafa ræktað síðustu ár.

 

Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Gunnbjarnarholti er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Hakk með 20-25% fituinnihaldi. 5 x 500 g pakkar
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Gunnbjarnarholti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Ribeye

500 g, 518 g, 538 g, 556 g, 558 g, 570 g, 582 g, 588 g, 614 g, 640 g, 642 g, 642 g, 644 g, 656 g, 660 g, 660 g, 664 g, 666 g, 678 g, 684 g, 684 g, 688 g, 694 g, 700 g, 702 g, 708 g, 734 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ketóhakk (20-25%) Angus frá Gunnbjarnarholti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…