Skip to content Skip to footer

Kofareykt ærbjúgu frá Snartarstöðum – 2 stk.

4.440 kr.

Kofareykt ærbjúgu frá Snartarstöðum í Lundarreykjadal í Borgarfirði. Bjúgu sem eru birkireykt ásamt smávegis sauðataði samkvæmt gamalli hefð. Suðutími 30 mínútur við vægan hita.

Tvö stykki. Verð pr. stk. 2.220 krónur. Samtals 4.440 kr. Þyngd á hvoru bjúga um 860 g. Eitt bjúga í pakka.

Eitt bjúga er passlegt í máltíð fyrir 3-4 einstaklinga.

Bjúgun eru frosin.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Afgreiðum samdægurs ef pantað er fyrir hádegi, annars daginn eftir. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

5 á lager

Flokkur: Merkimiðar: , , , Vörunúmer:75281

Lýsing

Eldunarleiðbeiningar

Bjúgun eru soðin í potti undir vægum hita í 30 mínútur. Ekki láta bullsjóða.

Bændurnir

Snartarstaðir eru lítið fjölskyldubú í Lundarreykjadal í Borgarfirði. Þar búa Guðrún María Björnsdóttir og Jóhann Páll Þorkelsson ásamt fjórum börnum sínum.  Á búinu eru rúmlega 300 kindur og nokkur naut og hross. Kartöflurræktun er stunduð í smáum stíl en bærinn er m.a. þekktur fyrir að selja kartöflur út við veg í forláta Land Rover þar sem kaupendur afgreiða sig sjálfir. Á búinu eru ræktaðir smalahundar sem eru bráðnauðsynlegir fyrir alla sem stunda sauðfjárbúskap. Gunna Mæja og Jóhann tóku við búinu árið 2016. Þau stefna á frekari vinnslu á eigin afurðum í framtíðinni en nú selja þau undir merkinu “Borgfirskt birkilamb frá Snartarstöðum”.


Snartarstaðir í Lundarreykjadal. Myndir úr einkasafni.

Varan

Frystivara

Næringargildi í 100 g:
Orka 1520 kj / 364 kkal
Fita 34,5 g
Kolvetni 4,8 g
Prótein: 14,5 g

Innihald: Birkireykt ærbjúgu. Ærkjöt, vatn, kartöflumjöl, salt og nitritsalt.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Snartarstöðum
Framleiðandi: Guðrún og Jóhann á Snartarstöðum. Unnið í viðurkenndri aðstöðu á Grímsstöðum.
Sláturhús: Sláturhúsið Grímsstöðum.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Kofareykt ærbjúgu frá Snartarstöðum – 2 stk.”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…