Lýsing
Krydduð lambarif, lífrænt vottuð. Kílóverð: 1.990 kr.
Frystivara.
Bændurnir
Sölvanes er sauðfjárbú á Fremribyggð í Skagafirði, 20 km sunnan við Varmahlíð. Þar búa Rúnar Máni Gunnarsson og Eydís Magnúsdóttir. Þau keyptu búið árið 2013 og eru nú með lífræna vottun á framleiðslunni. Féð gengur í Hamraheiði ofan við bæinn á sumrin.
Hjónin vinna vörurnar sjálf í Vörusmiðju Biopol á Skagaströnd og allt kjöt er látið hanga fyrir frystingu. Á bænum eru einnig nokkur hross og þar er rekin ferðaþjónusta. Kjötið frá Sölvanesi hefur um nokkurt skeið verið á matseðli á veitingastaðnum Kaffi Laugalæk sem er í sama húsi og Matland.
Rúnar Máni Gunnarsson og Eydís Magnúsdóttir.
Sölvanes í Skagafirði. /Myndir úr einkasafni.
Í Sölvanesi er einnig gistihús þar sem hægt er að fá uppbúin rúm eða svefnpokapláss ásamt morgunmat ef óskað er. Boðið er upp á sveitaheimsóknir allt árið um kring fyrir einstaklinga og hópa. Þá er hægt að fræðast um sveitina, skoða kindurnar og jafnvel fleiri dýr eins og hross, hænur, hund og kött og fá kaffisopa eða kakó á eftir. Heimsóknir þarf að panta fyrirfram.
Eldunarleiðbeiningar
Lambarifin er upplagt að grilla á miðlungs hita í um 20 mínútur og passa að þau brenni ekki þar sem fitan er eldfim. Takið af grillinu og steikið í blástursofni við 150-160°C í aðrar 20-30 mínútur.
Ef rifin eru eingöngu höfð í ofni eru þau steikt í um 40 mínútur við 160°C hita.
Kjötið frá Sölvanesi hefur fengið að hanga og er fullmeyrnað.
Innihald: Lambarif, paprika, pipar, hvítlaukur, laukduft, salt, oregano, steinselja, marjoram, salvía, sinnepsfræ, rósmarín, timian, chili. Öll innihaldsefnin eru lífrænt vottuð.
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Sölvanesi er unnið og pakkað í Vörusmiðju Biopól á Skagaströnd.
Frystivara.
Innihald: Lífrænt vottað lambakjöt. Krydduð lambarif.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Sölvanesi
Framleiðandi: Bændurnir í Sölvanesi hjá Biopol á Skagaströnd
Sláturhús: Sláturhús SAH
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is