Skip to content Skip to footer

Reykt lambabjúgu frá Árdal – mild og mjúk – 2 stk.

Price range: 1.992 kr. through 3.920 kr.

Reykt lambabjúgu frá Árdal í Kelduhverfi. Kjötið kemur af heiðargengnum lömbum sem ganga á fullgrónum afrétti með lynggróðri og kjarri. Kjöt sem fékk að hanga í 5 daga eftir slátrun sem þýðir meiri meyrnun. Bjúgun eru taðreykt á gamla mátann.

Bjúgun eru frosin og 2-4 í pakka. Heildarþyngdir á bilinu 570-950 g.  Kílóverð 3.250 kr.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Afgreiðum samdægurs ef pantað er fyrir hádegi, annars daginn eftir. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Veldu hér undir þá þyngd sem þú óskar eftir.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , , Vörunúmer:70215

Lýsing

Lambakjötið frá Árdal fékk að hanga í 5 daga eftir slátrun. Við það verður kjötið meyrara en léttist að sama skapi þar sem vökvi gufar upp úr því.

Eldunarleiðbeiningar

Bjúgun eru soðin í potti undir vægum hita í 1 klst. Ekki láta bullsjóða.

Bændurnir

Bærinn Árdalur er í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjasýslu. Þar búa hjónin Salbjörg Matthíasdóttir og Jónas Þór Viðarsson með börnum sínum þremur þeim Heiðnýju, Sigursveini og Hrafney. Á bænum eru um 120 vetrarfóðraðar kindur, átta hestar og tveir hundar

Árið 2021 byggðu bændurnir kjötvinnslu á jörðinni sem fékk nafnið Árdalsafurðir. Með komu hennar hafa Salbjörg og Jónas selt vörur sínar með upprunamerkingum beint frá býli. Þau vinna bæði utan bús en Salbjörg er í 90% starfi hjá Landgræðslunni og Jónas er í hlutastarfi sem tónlistakennari hjá Tónlistarskóla Húsavíkur ásamt því að stunda smíðar.

Á hverju ári fæðast á bilinu 180-190 lömb í Árdal og nýtur fjölskyldan þess að hugsa um kindurnar, taka þátt í samfélaginu í gegnum búskapinn og vinna afurðirnar sjálf. Auk sauðfjárræktarinnar í Árdal stunda Salbjörg og Jónas hestamennsku; ríða út og fara í hestaferðir á sumrin.


Salbjörg Matthíasdóttir, bóndi í Árdal ásamt hrútinum Vin sem hefur gefið einstaklega kjötmikil og væn lömb. Mynd / Árdalur

Grænlamb – sauðfé sem eingöngu er beitt á vel gróið land

Bændurnir í Árdal markaðssetja vörurnar sínar undir vörumerkinu “Grænlamb”. Notendur merkisins eru framleiðendur sauðfjárafurða í Kelduhverfi og söluaðilar þeirra. Einungis afurðir sauðfjár sem gengur í sameiginlegum beitilöndum Keldhverfinga eru markaðssettar og seldar undir merki Grænlambs. Lömb merkt Grænlambi hafa öll verið á vel grónu beitilandi.

Kelduhverfið er rauðlitað á Íslandskortinu. Bærinn Árdalur er mitt á milli Húsavíkur og Kópaskers. Mynd / Grænlamb

Yfir 90% beitilands Keldhverfinga er vel gróið og stendur Grænlamb fyrir afurðir af grónu landi.

  • Beitilandið er víðáttumikið og að mestu undir 300 m hæð yfir sjó.
  • Hver kind hefur um 18 hektara til umráða fyrir sig.
  • Um 9 þúsund fermetrar af grónu landi eru fyrir hvert kíló framleidds lambakjöts á svæðinu.
  • Heiðar Kelduhverfis eru nánast eingöngu mólendi með ríkjandi lynggróðri, kjarri og birkiskógi, sem einkennist af hraunklöppum og hraundröngum á yfirborði.

Sauðfé að hausti. Mynd / Áskell Þórisson

Varan

Frystivara.

Næringargildi í 100 g:
Orka 1520 kj / 364 kkal
Fita 34,5 g
Kolvetni 4,8 g
Prótein: 14,5 g

Innihald: Lambabjúgu. Lambakjöt, salt, nitritsalt, kartöflumjöl, matarsódi, papirka, chillipipar, svartur pipar, kalksilikat.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Árdal í Kelduhverfi
Framleiðandi: Kjötvinnslan Árdalsafurðir
Sláturhús: Sláturhúsið á Kópaskeri
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Lambabjúgu, þyngdir

613 g, 987 g, 1012 g, 1105 g, 1206 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Reykt lambabjúgu frá Árdal – mild og mjúk – 2 stk.”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…