Lýsing
Íslenskt lambakjöt er fyrsta og eina íslenska matvaran sem hefur fengið PDO-merkingu, Protected Designation of Origin, sem er hæsta stig verndaðra upprunaheita í Evrópu.
PDO er ein þekktasta viðurkenningin fyrir vernduð upprunaheiti á Evrópumarkaði. Margar af þekktustu og eftirsóttustu gæðavörum í heimi skarta þessu merki, s.s. hið eina sanna franska kampavín, gríski feta-osturinn, parmaskinkan, parmesan og svo mætti lengi telja. Merkið er þekkt um alla Evrópu og er aðeins veitt afurðum sem uppfylla mjög ströng skilyrði um einstaka, staðbundna framleiðsluhætti og notkun hráefna úr nærumhverfinu. Heimild: Vefurinn lambakjot.is
Eldunarleiðbeiningar
Það er smekksatriði hvernig fólk kýs að elda lambahrygg en við mælum með að nota kjöthitamæli við eldunina.
Heilsteiktur lambahryggur – uppskrift frá lambakjot.is
1. Hitið ofninn í 120°C, nuddið olíu á hrygginn og saltið. Dreifið timían og rósmarín vel yfir hrygginn. Ofnsteikið í 2 tíma eða þar til kjarnhitinn er kominn í um 58°c. Mælum með að nota kjarnhitamæli.
2. Takið hrygginn út og hækkið hitann í 220°c. Setjið aftur inn í 10 mín eða þar til skorpan er orðinn fagur brúnuð.
Látið hrygginn hvíla í minnst 10 mín áður en hann er skorinn. Skreytið með möndlum, timian og rósmarín.
Sauðfé að hausti. Mynd / Áskell Þórisson
Varan
Frystivara.
Innihald: Lambahryggur
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á starfssvæði Fjallalambs á Kópaskeri
Framleiðandi: Fjallalamb (slátrun) og Kjarnafæði / Norðlenska á Húsavík (pökkun og dreifing)
Sláturhús: Sláturhúsið á Kópaskeri
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.