Skip to content Skip to footer

Lambakótelettur (tvöfaldar) frá Glitstöðum – sérmeyrnaðar

5.331 kr.7.116 kr.

Matland hefur til sölu fyrsta flokks tvöfaldar lambakótelettur frá fyrirmyndarbúinu Glitstöðum í Borgarfirði. Kóteletturnar eru úr spjaldhryggnum (með lundum) og eru 3 cm þykkar. Mjúkt og meyrt lambakjöt sem hefur fengið að hanga í sjö daga. Þú finnur muninn.

Kóteletturnar eru frosnar og eru afhentar daginn eftir kaup. Kílóverð 5.990 kr. Hver kóteletta er á bilinu 125-140 g. Pakki með 8 kótelettum vegur um 1.060 g.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir í verslun Pylsumeistarans á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup, síðdegis. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Veldu hér undir þá stærð sem hentar þér.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:30387

Lýsing

Hágæðavara frá Glitstöðum og handverkssláturhúsinu Brákarey í Borgarnesi. Kjötið er sérmeyrnað en það fékk að hanga í 7 daga eftir slátrun. Við það verður kjötið meyrara en léttist að sama skapi þar sem vökvi gufar upp úr því.

Rekjanlegt íslenskt hráefni í takmörkuðu magni með lágmarks kolefnisspor.

Frystivara.

Bændurnir


Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum. Mynd / TB

Lambakjötið er frá bænum Glitstöðum í Borgarfirði þar sem er rekið myndarlegt blandað bú með kýr og kindur. Mjólkurframleiðsla með 35 kúm er aðal-atvinnugreinin en á bænum eru líka 150 kindur. Að vera með 35 kýr í mjólkurframleiðslu þýðir að annað eins er í fjósi þ.e. geldkýr, kvígur og kálfar. Að jafnaði eru um 80 gripir í fjósinu sem fá allir sérlega gott atlæti. Bændur á Glitstöðum eru hjónin Eiður Ólason og Guðrún Sigurjónsdóttir.

Varan

Frystivara.

Innihald: Lambakótelettur – tvöfaldar með lundum, 3 cm þykkar.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Glitstöðum í Borgarfirði.
Framleiðandi: Brákarey í Borgarnesi.
Sláturhús nr. A997 – Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Kótelettur, tvöfaldar

890 g, 1024 g, 1074 g, 1088 g, 1188 g, 1144 g, 1064 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Lambakótelettur (tvöfaldar) frá Glitstöðum – sérmeyrnaðar”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…