Skip to content Skip to footer

Litlir pakkar af nautahakki (8-12%) frá Gerðum – 5 x 300g

5.535 kr.

Litlir pakkar (300 g) af nautahakki með 8-12% fitu frá bænum Gerðum í Flóa. 5 pk x 300 g = 1,5 kg. Pakkarnir eru flatir og staflast vel í frysti. Engin íblöndunarefni – bara hreint hakk. Kjörinn skammtur fyrir einn til tvo í mat.

Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Frystivara.

5 pk x 300 g = 1,5 kg. Kílóverð er 3.690 krónur. Heildarverð fyrir pakkann er 5.535 kr.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Ekki til á lager

Lýsing

Bændurnir

Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af mjólkurkúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.


Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður. 

Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Gerðum er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Hakk með 8-12% fituinnihaldi. 5 x 300 g pakkar
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Gerðum í Flóa.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhús SS
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Ribeye

500 g, 518 g, 538 g, 556 g, 558 g, 570 g, 582 g, 588 g, 614 g, 640 g, 642 g, 642 g, 644 g, 656 g, 660 g, 660 g, 664 g, 666 g, 678 g, 684 g, 684 g, 688 g, 694 g, 700 g, 702 g, 708 g, 734 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Litlir pakkar af nautahakki (8-12%) frá Gerðum – 5 x 300g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…