Lýsing
Afhending mánudaginn 16. september
Eldunarleiðbeiningar
Komið fiskréttinum fyrir í eldföstu móti. Það má líka hita hann í álbakkanum. Bakið í blástursofni í 15-18 mínútur við 180-200°C blástur eða 18-22 mínútur í 180°C, með undir og yfirhita. Mælt er með 2 msk af rjóma út í formið fyrir eldun.
Þegar saltfiskurinn er settur upp á disk er gott að strá yfir hann parmesanosti. Rucola og fettuccine-pasta er kjörið sem meðlæti.
Við mælum með að fólk reikni með 300-350 g á mann af þessum rétti.
Næringargildi í 100 g:
Orka 400 Kj/96 Kcal
Fita 3,7 g
*Þar af mettuð 0,4 g
Kolvetni 1,4 g
*Þar af sykurtegundir 0,1 g
Prótein 13,8 g
Salt 1,35 g
Varan
Saltfiskur með piccolótómat og basil frá Sjávarbúrinu
Innihald: Nætursaltaður Þorskur (þorskur, salt (4%), Piccolótómatar frá Friðheimum, tómatpúrra (tómatar, salt), sólþurrkaðir tómatar (tómatar, sólblómaolía, hvítvínsedik, sjávarsalt, sítrónusýra), laukur, repjuolía, svartar ólífur, ferskur basil, svartur pipar, hvítlaukur, bergmynta, steinselja, möluð paprika.
Kælivara 0-4°C
Upprunaland: Ísland
Framleiðsla og pökkun: Sjávarbúrið, Hvaleyrarbraut 2, 220 Hafnarfjörður. Netfang: sjavarburid@sjavarburid.is
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna eftir kl. 15 á mánudögum: Afhendingarstaður Matlands á Hrísateigi 47 í Reykjavík.