Skip to content Skip to footer

Saltkjöt frá Sölvanesi

2.334 kr.3.029 kr.

Saltkjöt frá lífrænt vottaða sauðfjárbúinu Sölvanesi í Skagafirði. Lærissneiðar. Þyngd á pökkunum er á bilinu 540-700 g. Tværi til þrjár lærissneiðar í pakka. Fallegt kjöt. Takmarkað magn.

Þú velur þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir.  Kílóverð: 4.290 kr.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:53837

Lýsing

Saltkjöt frá lífræna búinu í Sölvanesi. Kílóverð: 4.290 kr.

Frystivara.

Bændurnir

Sölvanes er sauðfjárbú á Fremribyggð í Skagafirði, 20 km sunnan við Varmahlíð. Þar búa Rúnar Máni Gunnarsson og Eydís Magnúsdóttir. Þau keyptu búið árið 2013 og eru nú með lífræna vottun á framleiðslunni. Féð gengur í Hamraheiði ofan við bæinn á sumrin.
Hjónin vinna vörurnar sjálf í Vörusmiðju Biopol á Skagaströnd og allt kjöt er látið hanga fyrir frystingu. Á bænum eru einnig nokkur hross og þar er rekin ferðaþjónusta. Kjötið frá Sölvanesi hefur um nokkurt skeið verið á matseðli á veitingastaðnum Kaffi Laugalæk sem er í sama húsi og Matland.

Rúnar Máni Gunnarsson og Eydís Magnúsdóttir.

Sölvanes í Skagafirði. /Myndir úr einkasafni.

Í Sölvanesi er einnig gistihús þar sem hægt er að fá uppbúin rúm eða svefnpokapláss ásamt morgunmat ef óskað er. Boðið er upp á sveitaheimsóknir allt árið um kring fyrir einstaklinga og hópa. Þá er hægt að fræðast um sveitina, skoða kindurnar og jafnvel fleiri dýr eins og hross, hænur, hund og kött og fá kaffisopa eða kakó á eftir. Heimsóknir þarf að panta fyrirfram.

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Sölvanesi er unnið og pakkað í Vörusmiðju Biopól á Skagaströnd.

Frystivara.

Innihald: Lífrænt vottað lambakjöt. Saltaðar lærissneiðar; saltkjöt. Salt, nítritsalt.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Sölvanesi
Framleiðandi: Bændurnir í Sölvanesi hjá Biopol á Skagaströnd
Sláturhús: Sláturhús SAH
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Saltkjöt, lærissneiðar

544 g, 558 g, 564 g, 584 g, 590 g, 620 g, 652 g, 666 g, 686 g, 706 g

Þér gæti einnig líkað við…