Lýsing
Fyrsta flokks ungnautakjöt frá Hvammi í Ölfusi. Íslenskt gæðanaut!
Kílóverð: 4.990 kr.
Frystivara.
Nautin í Hvammi í Ölfusi eru engin smásmíði. Þau fá gott atlæti og eru í rúmgóðum stíum. Mynd / Hvammsbúið
Bændurnir
Í Hvammi búa bændurnir Pétur Benedikt Guðmundsson og Charlotte Clausen. Sonur þeirra Davíð Clausen starfar í kjötiðnaði og sér um nautaeldið.
Nautin í Hvammi eru alin í rúmgóðum stíum og fá bjórhrat ásamt íslensku heyi alla sína ævi. Þess vegna kalla bændurnir þau „Ölnaut“. Síðustu þrjá mánuðina fyrir slátrun fá nautin alvöru bjór sem hjálpar til við að fita þau. Bjórinn kemur úr bjórverksmiðju og er ekki almenn söluvara. Hvert naut fær á bilinu 1-2 lítra af bjór á dag en hann er blandaður byggi sem ræktað er á bænum.
Hvernig er best að elda skirt?
Ágætt er að miða við 200-250 g á mann í aðalmáltíð. Matland mælir með að grilla skirt-steikina en það er líka hægt að elda hana á snarkheitri pönnu. Munið að láta hvíla eftir eldun og skerið síðan þvert á vöðvaþræðina. Flott að bera fram í þunnun sneiðum á bretti.
Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.
Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.
Kjarnhiti nautakjöts
Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Hvammi er unnið og pakkað hjá Ferskum kjötvörum í Síðumúla í Reykjavík.
Frystivara.
Innihald: Ungnautakjöt – ytra skirt
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Hvammi í Ölfusi
Framleiðandi: Ferskar kjötvörur ehf.
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.