Skip to content Skip to footer

Túlipanar frá Stykkishólmi – tvöfaldir fjólubláir og bleikir

2.500 kr.

Túlipanar frá Clemens van der Zwet og Elsu Jóhannesdótttur í Stykkishólmi. 10 stykki í búntinu. Bleikir og fjólubláir túlipanar, tvöfaldir. Verð á einu búnti er aðeins 2.500 krónur.

Veldu þann fjölda af vöndum sem þú óskar eftir hér undir.

Matland afhendir túlipanana á Hrísateig 47 í Reykjavík. Við sendum SMS þegar vörurnar þínar eru tilbúnar til afhendingar. Keyrum út til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu og sendum um allt land með Samskipum.

Ekki til á lager

Flokkar: , Vörunúmer:76334

Lýsing

Framleiðendurnir

Clemens van der Zwet og Elsa Jóhannesdóttir rækta túlipana í 70 fermetra gróðurhúsi í Stykkishólmi. Clemens er Hollendingur og er af ætt túlipanaræktenda þar í landi. Í fimmtíu ár hefur hann ræktað túlipana en síðustu 10 ár hefur hann verið búsettur á Íslandi. Túlipanarnir þeirra eru í öllum regnbogans litum og það eru 10 stykki í búntinu.

Leiðbeiningar

Þegar vöndurinn er kominn heim skaltu skera um 1 cm af stilkunum. Hafðu pappírinn utan tv um búntið og settu í ískalt vatn í hálftíma. Láttu vatnið aðeins ná 5 cm upp á stilkana. Eftir hálftíma er hægt að taka pappírinn af og bæta aðeins við vatnið. Þá ættu túlipanarnir þínir að vera reistir og fínir.

Varan

Túlipanar. Tvöfaldir fjólubláir (5 stk) og bleikir (5 stk). 10 stk í búnti.

Upprunaland: Ísland. Laukarnir eru hollenskir.
Pökkun og dreifing: Clemens van der Zwet
Framleiðendur: Clemens van der Zwet, Garðaflöt 6, 340 Stykkishólmur.

Frekari upplýsingar

Túlipanabúnt

Bleikir, Gulir

Þér gæti einnig líkað við…