Skip to content Skip to footer

Tvíreykt sauðahangilæri með beini – 20% afsláttur

21.865 kr.22.398 kr.

Tvíreykt sauðahangilæri með beini; Hólsfjallahangikjöt frá Fjallalambi á Kópaskeri. Þetta læri hengir þú upp í köldum skúr og sneiðir vænar flísar fyrir þig og þína gesti á aðventunni. Þegar jólin nálgast má úrbeina og sjóða það sem eftir er. Kjötið er upplagt að borða hrátt, nota í forrétti eða sem snakk með t.d. piparrótarsósu frá Völlum í Svarfaðardal.

Hólsfjallahangikjötið er landsþekkt vörumerki úr N-Þingeyjarsýslunni. Kjöt sem er unnið samkvæmt gömlum hefðum hjá Fjallalambi á Kópaskeri. Það er reykt við tað eins og annað hangikjöt frá Fjallalambi.

Frystivara. Verð á kg. er 5.840 kr. Bjóðum 20% afslátt af þessu verði. Lærin eru misstór eða á bilinu 3,5-4,7 kg. Lærið kemur pakkað í plast og með hæklinum svo auðvelt er að hengja það upp.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land. 

* Ath. að skerstokkurinn sem er á aðalmyndinni fylgir ekki og er því miður ekki til sölu hjá Matlandi.

Veldu hér undir þá stærð sem hentar þér.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , , Vörunúmer:31409

Lýsing

Hólsfjallahangikjötið og Fjallalamb á Kópaskeri

Fjallalamb hefur um árabil boðið upp á hangikjöt af veturgömlum sauðum sem hefur skapað fyrirtækinu þó nokkra sérstöðu og fastan viðskiptavinahóp. Ekta sauðahangikjöt af veturgömlu þykir einstaklega gott. Það er bragðmikið en heldur mýkt lambakjötsins. Þeir sem byrja að borða hangikjöt af veturgömlu vilja gjarnan ekkert annað.

Kjötið er pækilsaltað (ekki sprautusaltað) í upphafi og áhersla er lögð á að salta það mjög lítið.

Reykingaraðferðin hjá Fjallalambi er byggð á gömlum hefðum, þó kjötið sé kaldreykt í nútíma reykofnum. Kjötið fær góðan tíma í reyknum og það er látið hanga á milli þess sem kveikt er undir og það látið þorna. Eftir reykinguna er kjötið látið hanga í nokkra daga til viðbótar áður en því er pakkað. Tvíreyktu sauðalærin fá að þorna meira en tíðkast í hefðbundnu verkuninni og þau eru reykt lengur. Þurrkunin gerir það að verkum að auðveldara er að skera þunnar flísar úr kjötinu en ef það væri blautara.

Fjallalamb hefur markaðssett hangikjötið undir nafninu „Hólsfjallahangikjöt“ um árabil. Nafnið tengist landshorninu og var fé sem gengið hafði á Hólsfjöllunum rómað fyrir vænleika og gæði. Féð sem Fjallalamb vinnur gengur þó ekki allt á Hólsfjöllunum nú til dags. Það kemur frá um 50 sauðfjárbændum sem búa víðs vegar í Þingeyjarsýslu.

 

Hangikjöt soðið í vatni

Það er í góðu lagi að sjóða restina af tvíreykta hangilærinu þegar heimilismenn hafa fengið nóg af því að borða það í smáskömmtum. En hafið í huga að hangikjöt af veturgömlum sauð þarf að sjóða heldur lengur en ef um lamb er að ræða. Ágætt er að úrbeina lærið og setja í rúllu en líka allt í lagi að sjóða í bitum.

  1. Setjið hangikjöt í pott með köldu vatni þannig að fljóti yfir kjötið. Hleypið suðunni upp (alls ekki láta bullsjóða) og látið hangikjötið vera við suðumark í 45-55 mín. per kg, athugið að skoða þyngdina á bitanum fyrst.
  2. Takið pottinn af hitanum og látið kjötið kólna í soðinu. Þetta má gjarna gera degi áður en hangikjötið er borðað og best að leyfa að vera í pottinum yfir nótt. Húsráð frá sláturhússtjóranum á Kópaskeri er að setja einn pilsner eða jafnvel bjór út í soðið þegar búið er að slökkva undir. Ölið gefur einhverja óútskýrða mýkt í kjötið að hans mati!
  3. Skerið í sneiðar og berið fram með uppstúf með kartöflum, rauðkáli, grænum baunum og laufabrauði.

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af hangilæri

Orka: 801 kJ, 192 kcal.
Prótein: 21,0 g
Fita: 12 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 5,3 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Salt: 4,5 g

Aðrar upplýsingar

Kjötið er unnið og pakkað hjá Fjallalambi á Kópaskeri.
Innihald: Tvíreykt, veturgamalt hangilæri.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í N-Þingeyjasýslu
Framleiðandi: Fjallalamb, Röndinni 3, 670 Kópaskeri
Sláturhús: Fjallalamb á Kópaskeri
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Læri með beini

3682 g, 3992 g, 4470 g, 4680 g, 4794 g

Þér gæti einnig líkað við…