Lýsing
Eldunarleiðbeiningar
Það er smekksatriði hvernig fólk kýs að elda lambakjöt. Kjötið frá Árdal hefur fengið að hanga í fimm daga og er fullmeyrnað. Tímalengd eldunar fer eftir hita og stærð. Ef að ofn er stilltur á 180-200°C má áætla að úrbeinað lambalæri (um 1,5 kg) taki á bilinu 50-60 mín. í eldun. Mælt er með því að nota kjöthitamæli við steikingu eða grillun.
Eftirfarandi kjarnhita er gott að miða við þegar lambakjöt er tekið út úr ofni:
Lambakjöt – lítið steikt (medium rare) = 65°
Lambakjöt – meðal steikt (medium) = 70°
Lambakjöt – gegnsteikt (well done) = 75°
Munið að láta kjötið hvíla eftir að það er tekið út úr ofni í a.m.k. 10 mínútur.
Bændurnir
Bærinn Árdalur er í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjasýslu. Þar búa hjónin Salbjörg Matthíasdóttir og Jónas Þór Viðarsson með börnum sínum þremur þeim Heiðnýju, Sigursveini og Hrafney. Á bænum eru um 120 vetrarfóðraðar kindur, átta hestar og tveir hundar
Árið 2021 byggðu bændurnir kjötvinnslu á jörðinni sem fékk nafnið Árdalsafurðir. Með komu hennar hafa Salbjörg og Jónas selt vörur sínar með upprunamerkingum beint frá býli. Þau vinna bæði utan bús en Salbjörg er í 90% starfi hjá Landgræðslunni og Jónas er í hlutastarfi sem tónlistakennari hjá Tónlistarskóla Húsavíkur ásamt því að stunda smíðar.
Á hverju ári fæðast á bilinu 180-190 lömb í Árdal og nýtur fjölskyldan þess að hugsa um kindurnar, taka þátt í samfélaginu í gegnum búskapinn og vinna afurðirnar sjálf. Auk sauðfjárræktarinnar í Árdal stunda Salbjörg og Jónas hestamennsku; ríða út og fara í hestaferðir á sumrin.
Salbjörg Matthíasdóttir, bóndi í Árdal ásamt hrútinum Vin sem hefur gefið einstaklega kjötmikil og væn lömb. Mynd / Árdalur
Grænlamb – sauðfé sem eingöngu er beitt á vel gróið land
Bændurnir í Árdal markaðssetja vörurnar sínar undir vörumerkinu “Grænlamb”. Notendur merkisins eru framleiðendur sauðfjárafurða í Kelduhverfi og söluaðilar þeirra. Einungis afurðir sauðfjár sem gengur í sameiginlegum beitilöndum Keldhverfinga eru markaðssettar og seldar undir merki Grænlambs. Lömb merkt Grænlambi hafa öll verið á vel grónu beitilandi.
Kelduhverfið er rauðlitað á Íslandskortinu. Bærinn Árdalur er mitt á milli Húsavíkur og Kópaskers. Mynd / Grænlamb
Yfir 90% beitilands Keldhverfinga er vel gróið og stendur Grænlamb fyrir afurðir af grónu landi.
- Beitilandið er víðáttumikið og að mestu undir 300 m hæð yfir sjó.
- Hver kind hefur um 18 hektara til umráða fyrir sig.
- Um 9 þúsund fermetrar af grónu landi eru fyrir hvert kíló framleidds lambakjöts á svæðinu.
- Heiðar Kelduhverfis eru nánast eingöngu mólendi með ríkjandi lynggróðri, kjarri og birkiskógi, sem einkennist af hraunklöppum og hraundröngum á yfirborði.
Sauðfé að hausti. Mynd / Áskell Þórisson
Varan
Úrbeinað lambalæri með kryddblöndu.
Innihald í kryddblöndu: Salt, krydd (inniheldur sinnep), jurtakraftur (vatnsrofið jurtaprótein, salt, jurtafita), hveiti, matodextrín, bragðefni, gerkraftur, sykur, ger.
Frystivara.
Innihald: Lambalæri, úrbeinað og kryddað
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Árdal í Kelduhverfi
Framleiðandi: Kjötvinnslan Árdalsafurðir
Sláturhús: Sláturhúsið á Kópaskeri
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.