Lýsing
Blanda fyrir lamb frá Mabrúka inniheldur hágæða hráefni frá Túnis. Öll hráefnin eru handtínd, skoðuð og hreinsuð og síðan möluð samkvæmt gömlum hefðum. Alls eru 40 g af kryddi í hverjum pappírspoka.
„Blandan okkar á lambið er frá Norður-Túnis, hrein gæðavara frá Miðjarðarhafinu. Hún er gerð úr 30% zaatar, 30% svörtum pipar, 20% salti, 10% myntu og 10% cayenne pipar.
Við höfum notað þessa uppskrift margoft fjölskyldan og vinir. Allir elska hana þar sem hún er fullkomin á kótilettur en hana má líka nota á t.d. nautalund. Við bætum við smá cayenne pipar þar sem hann kemur með sérstakt bragð. Svarti piparinn er nýmalaður fyrir blönduna. Zaatarið okkar og myntan eru jurtir sem eru tíndar í fjöllunum.“ Safa Jemai.
Stofnandi og aðaleigandi Mabrúka heitir Safa Jemai og er frá Túnis. Hún flutti til Íslands árið 2018 til að stunda nám við Háskóla Íslands en ákvað að hefja innflutning á kryddum frá sínu heimalandi því hún saknaði ferska bragðsins af kryddunum frá Túnis. Safa stofnaði Mabrúka með móður sinni sem býr í Túnis og framleiðir kryddin heima hjá sér frá grunni.
Mæðgurnar Mabruka og Safa í Túnis.
Varan
Innihald: 30% zaatar, 30% svartur pipar, 20% salt, 10% mynta og 10% cayenne pipar.
Þyngd: 40 g
Framleiðsluland: Túnis. Vörunni er pakkað í Túnis og send til Íslands.