Lýsing
Grænmetisblandan frá Mabrúka inniheldur hágæða hráefni frá Túnis. Öll hráefnin eru handtínd, skoðuð og hreinsuð og síðan möluð samkvæmt gömlum hefðum. Alls eru 40 g af kryddi í hverjum pappírspoka.
Zaatar og mynta eru jurtir sem eru tíndar í fjöllunum í Túnis. Kóríanderinn er 100% lífrænn og keyptur beint frá býli. Tabel er sérstakt túniskt krydd. Það er blanda af kóríanderfræjum, kúmenfræjum, salti, myntu, fjólubláum hvítlauk og smá broddkúmeni.
Stofnandi og aðaleigandi Mabrúka heitir Safa Jemai og er frá Túnis. Hún flutti til Íslands árið 2018 til að stunda nám við Háskóla Íslands en ákvað að hefja innflutning á kryddum frá sínu heimalandi því hún saknaði ferska bragðsins af kryddunum frá Túnis. Safa stofnaði Mabrúka með móður sinni sem býr í Túnis og framleiðir kryddin heima hjá sér frá grunni.
Mæðgurnar Mabruka og Safa í Túnis.
Varan
Innihald: 30% tabel, 20% svartur pipar, 20% zaatar, 10% salt, 10% þurrkaður hvítlaukur, 5% rauðlaukur og 5% kóríander.
Þyngd: 40 g
Framleiðsluland: Túnis. Vörunni er pakkað í Túnis og send til Íslands.