Ketóflex 3-3-1 mataræðið
4.490 kr.
Hreinn og heilnæmur lífsstíll
Ketóflex er fullkomin og frelsandi leið til að ná kjörþyngd og hressa sig við. Á ketóflex endurnýjar líkaminn sig og jafnvægi næst á hormóna og orku. Það skilar sér í betri líðan, aukinni fitubrennslu, betri svefni, bættu útliti og meiri gleði.
Þú nýtir kosti ketó en byggir á mun meiri sveigjanleika í mataræðinu. Eftir aðlögunartímabil er ketósan brotin upp með fjölbreyttari fæðu; þrír dagar vikunnar á ketófæði, þrír á lágkolvetnafæði og einn frjáls dagur.
Ketóflex 3-3-1 inniheldur fróðleik og dásamlegar og einfaldar, sykurlausar og ketóvænar uppskriftir sem henta í hraða samfélagsins.
Endurheimtu orkuna, jafnvægið og gleðina með sveigjanleika ketóflex, lífsstílnum sem allir geta ráðið við án eftirsjár eftir gömlum siðum.
Höfundur: Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.