Lýsing
Kjöt- og fiskpakkinn inniheldur:
- Blanda fyrir lamb – 40 g
- Fiskikrydd – 40 g
- Salt & pipar – 40 g
- Sítrónublanda – 40 g
- Kjúklingablanda – 40 g
Öll hráefnin í kryddunum frá Mabrúka eru handtínd, skoðuð og hreinsuð og síðan möluð samkvæmt gömlum hefðum. Alls eru 40 g af kryddi í hverjum pappírspoka og er kjöt- og fiskpakkinn því 200 g í heildina.
Stofnandi og aðaleigandi Mabrúka heitir Safa Jemai og er frá Túnis. Hún flutti til Íslands árið 2018 til að stunda nám við Háskóla Íslands en ákvað að hefja innflutning á kryddum frá sínu heimalandi því hún saknaði ferska bragðsins af kryddunum í Túnis. Safa stofnaði Mabrúka með móður sinni, sem býr í Túnis, og framleiðir kryddin heima hjá sér frá grunni.
Mæðgurnar Mabruka og Safa í Túnis.
Varan
Innihald: 5 kryddbréf: Blanda fyrir lamb, fiskikrydd, kjúklingablanda, sítrónublanda og salt & pipar.
Þyngd: 40 g x 5 = 200 g
Framleiðsluland: Túnis. Vörunni er pakkað í Túnis og send til Íslands.