Skip to content Skip to footer
-6%

Kjöt- og fiskpakkinn frá Mabrúka

Original price was: 7.450 kr..Current price is: 6.990 kr..

Hágæða handgerð krydd frá Túnis, framleidd við Miðjarðarhafið.

Blöndurnar í kjöt- og fiskpakkanum eru sérvaldar til að fá fram sem best bragð í kjöt- og fiskréttum. Pakkinn inniheldur blöndu fyrir lamb, fiskikrydd, kjúklingablöndu, sítrónublöndu og salt & pipar.

Matland sendir þér kryddin frá Mabrúka gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir að pöntun er gerð eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Flokkur: Vörunúmer:18789

Lýsing

Kjöt- og fiskpakkinn inniheldur:

  • Blanda fyrir lamb – 40 g
  • Fiskikrydd – 40 g
  • Salt & pipar – 85 g
  • Sítrónublanda – 65 g
  • Kjúklingablanda – 55 g

Öll hráefnin í kryddunum frá Mabrúka eru handtínd, skoðuð og hreinsuð og síðan möluð samkvæmt gömlum hefðum. Alls eru á bilinu 40 -85 g af kryddi í hverjum pappírspoka og er kjöt- og fiskpakkinn því 285 g í heildina.

Stofnandi og aðaleigandi Mabrúka heitir Safa Jemai og er frá Túnis. Hún flutti til Íslands árið 2018 til að stunda nám við Háskóla Íslands en ákvað að hefja innflutning á kryddum frá sínu heimalandi því hún saknaði ferska bragðsins af kryddunum í Túnis. Safa stofnaði Mabrúka með móður sinni, sem býr í Túnis, og framleiðir kryddin heima hjá sér frá grunni.


Mæðgurnar Mabruka og Safa í Túnis.

Varan

Innihald: 5 kryddbréf: Blanda fyrir lamb, fiskikrydd, kjúklingablanda, sítrónublanda og salt & pipar.

Þyngd:  285 g

Framleiðsluland: Túnis. Vörunni er pakkað í Túnis og send til Íslands.

 

 

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard