Lýsing
Broddkúmenið (e. Cumin) frá Mabrúka er unnið úr hágæða hráefni frá Túnis. Öll hráefnin í kryddunum frá Mabrúka eru handtínd, skoðuð og hreinsuð og síðan möluð samkvæmt gömlum hefðum. Alls eru 40 g af kryddi í hverjum pappírspoka.
„Kúmenið er sérlega ferskt og malað rétt áður en það er sett í blöndur og pakkað, til þess að það hafi sterka og góða lykt og bragð. Mamma velur það sjálf til þess að passa upp á gæðin. Allt ferlið er gert í höndunum þar til við pökkum því. Broddkúmen er t.d. notað í kjöt, súpur og chilirétti.“ Safa Jemai.
Stofnandi og aðaleigandi Mabrúka heitir Safa Jemai og er frá Túnis. Hún flutti til Íslands árið 2018 til að stunda nám við Háskóla Íslands en ákvað að hefja innflutning á kryddum frá sínu heimalandi því hún saknaði ferska bragðsins af kryddunum í Túnis. Safa stofnaði Mabrúka með móður sinni, sem býr í Túnis, og framleiðir kryddin heima hjá sér frá grunni.
Mæðgurnar Mabruka og Safa í Túnis.
Varan
Innihald: 100% Cumin-fræ
Þyngd: 40 g
Framleiðsluland: Túnis. Vörunni er pakkað í Túnis og send til Íslands.