Skip to content Skip to footer

Ostagerð – heimavinnsla mjólkurafurða

3.190 kr.

Langar þig til að læra að gera eigin osta? Þórarinn E. Sveinsson mjólkurverkfræðingur leiðir lesendur í allan sannleik um ostagerð á einfaldan hátt. Megináherslan er lögð á ostagerð úr kúamjólk og mjólk sem hráefni. Gefnar eru upp nokkrar grunnuppskriftir, s.s. af skyri, jógúrti, kotasælu, fetaosti, mascarpone, mysuosti og ýmsum hleypiostum eins og parmesan og camembert. Gagnlegur fróðleikur um söguna, heimaframleiðslu, góð ráð og líka um það sem ber að varast.

Höfundur: Þórarinn E. Sveinsson. Bókin er 76 blaðsíður.

Bókin fæst hjá Matlandi á Hrísateig 47 og er afgreidd daginn eftir pöntun, samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Þú færð sent sms þegar pöntunin er tilbúin. Bjóðum upp á heimsendingu og sendum um allt land með Samskipum.

Flokkur: Merkimiðar: , , Vörunúmer:50376

Lýsing

Heimavinnsla mjólkurafurða – Ostagerð. Bókin byggir á efni sem tekið var saman vegna námskeiða sem Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands hélt á fyrri hluta ársins 2009. Þórarinn Egill Sveinsson mjólkurverkfræðingur fór þá víða um land og kenndi fólki undirstöðuatriði í ostagerð í heimahúsum. Fljótt kom í ljós mikill áhugi á ostagerð og var þess farið á leit við Þórarin Egil að hann setti saman bók um efnið.

Engin lýsing til

Þórarinn Egill segir í formálsorðum mikilvægt að fólk sé óhrætt við að prófa sig áfram og búa til eigin uppskriftir. Til þess þarf sjaldan annan búnað en til er á venjulegu heimili. “Heimavinnsla mjólkur er skemmtileg hlið matargerðar. Raunar er allt leyfilegt og um að gera að prófa sem flestar samsetningar og aðferðir,” er haft eftir höfundi.

Engin lýsing til

Bókin er 76 blaðsíður.

Útgefandi: Landbúnaðarháskóli Íslands. Starfsmenntaráð styrkti útgáfuna.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ostagerð – heimavinnsla mjólkurafurða”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…