Skip to content Skip to footer

Svört piparkorn frá Mabrúka

1.380 kr.

Fersk ómulin svört piparkorn. Hágæða handgert krydd frá Túnis, framleitt við Miðjarðarhafið.

Matland sendir þér kryddin frá Mabrúka gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir að pöntun er gerð eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Flokkar: , Vörunúmer:69545

Lýsing

Piparinn frá Mabrúka inniheldur hágæða hráefni frá Túnis. Öll hráefnin í kryddunum frá Mabrúka eru handtínd, skoðuð og hreinsuð og síðan möluð samkvæmt gömlum hefðum. Alls eru 65 g af piparkornum í hverjum pappírspoka.

„Svarti piparinn okkar er sérstaklega ferskur. Mamma velur hann sjálf til þess að passa upp á gæðin. Allt ferlið er gert í höndunum.Safa Jemai.

Stofnandi og aðaleigandi Mabrúka heitir Safa Jemai og er frá Túnis. Hún flutti til Íslands árið 2018 til að stunda nám við Háskóla Íslands en ákvað að hefja innflutning á kryddum frá sínu heimalandi því hún saknaði ferska bragðsins af kryddunum í Túnis. Safa stofnaði Mabrúka með móður sinni sem býr í Túnis og framleiðir kryddin heima hjá sér frá grunni.


Mæðgurnar Mabruka og Safa í Túnis.

Varan

Innihald: 100% svartur pipar, ómalaður

Þyngd: 65 g

Framleiðsluland: Túnis. Vörunni er pakkað í Túnis og send til Íslands.