Skip to content Skip to footer

Sítrónublanda

1.990 kr.

Hágæða handgert krydd frá Túnis, framleitt við Miðjarðarhafið. Sítrónublandan inniheldur 40% ferskan svartan pipar, 30% sítrónubörk og 30% náttúrulegt, óunnið salt.

Matland sendir þér kryddin frá Mabrúka gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir að pöntun er gerð eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Flokkur: Vörunúmer:18772

Lýsing

Sítrónublandan frá Mabrúka inniheldur hágæða hráefni frá Túnis. Öll hráefnin í kryddunum eru handtínd, skoðuð og hreinsuð og síðan möluð samkvæmt gömlum hefðum. Alls eru 40 g af kryddi í hverjum pappírspoka.

„Mamma keypti 2000 kg af sítrónu til að fá bara 58 kg af berki. Það tók mikinn tíma til að finna bónda með hágæða sítrónur þar sem húðin á að vera hrein og ekki með svarta punkta. Það tók okkur í kringum 3 mánuði að finna hvernig best er að búa til sítrónubörk, engin gat hjálpað okkur og það voru litlar upplýsingar til um hvernig er hægt að búa til mikinn sítrónubörk í einu. Þannig að við fórum að prófa mismunandi aðferðir. Hún byrjar með að skera niður húðina af sítrónunum og þurrka hana undir sólinni við Miðjarðarhafið við 25-35 stiga hita. Það þarf að passa vel að börkurinn þurrkist rétt, ekki of lítið, og brenni heldur ekki. Þess vegna er mamma búin að passa sérstaklega vel upp á hann, bæði dag og nótt. Saltið sem við notum í blöndunni okkar kemur frá Vestur-Túnis og er 100% náttúrulegt, kemur úr heitu söltu lindarvatni sem streymir þar upp úr jörðu og rennur niður fjöllin. Það er ekki unnið og er í hæsta gæðaflokki. Það er ríkt af snefilefnum (t.d. sinki) og steinefnum. Heita lindin hefur verið þarna í meira en 200 milljón ár.

Þetta salt er mikið flutt til t.d. Sviss og Þýskalands. Pipar er ekki bara pipar. Að velja ferskustu piparkornin er mikilvægt fyrir okkur þar sem þau hafa sterkari og ferskari lykt og meira bragð. Við mölum piparkornin rétt áður en við pökkum þeim og sendum til Íslands til þess að halda ferskari lykt og bragði. Ferlið er gert í höndunum allt frá byrjun þangað til við pökkum piparnum. Það er ekkert aukefni í sítrónublöndunni.Safa Jemai.

Stofnandi og aðaleigandi Mabrúka heitir Safa Jemai og er frá Túnis. Hún flutti til Íslands árið 2018 til að stunda nám við Háskóla Íslands en ákvað að hefja innflutning á kryddum frá sínu heimalandi því hún saknaði ferska bragðsins af kryddunum í Túnis. Safa stofnaði Mabrúka með móður sinni sem býr í Túnis og framleiðir kryddin heima hjá sér frá grunni.


Mæðgurnar Mabruka og Safa í Túnis.


Þurrkaður sítrónubörkur mulinn í morteli.

Varan

Innihald: 40% ferskur svartur pipar, 30% sítrónubörkur og 30% náttúrulegt, óunnið salt.

Þyngd: 40 g

Framleiðsluland: Túnis. Vörunni er pakkað í Túnis og send til Íslands.