Lýsing
Hvítlauksduftið frá Mabrúka inniheldur hágæða hráefni frá Túnis. Öll hráefnin í kryddunum frá Mabrúka eru handtínd, skoðuð og hreinsuð og síðan möluð samkvæmt gömlum hefðum. Alls eru 40 g af kryddi í hverjum pappírspoka.
„Þetta var ein af stærstum áskorunum hennar mömmu. Ferlið til að fá hvítlauksduft úr hvítlauki var svo langt og krefjandi. Hún vill bara nota fjólubláan hvítlauk sem er harðhálsa hvítlaukur og er með fjólubláar rendur á hýðinu. Hann hefur færri geira og meira allicin-innihald. Þessir eiginleikar gera fjólubláa hvítlaukinn dýrari og betri í kryddgerð. Talandi um bragð, fjólublái hvítlaukurinn er með mildari lykt og bragð sem endist lengur en á hvíta hvítlauknum.
Mamma kaupir stóra poka af hvítlauk frá bóndakonu sem býr í Norður-Túnis. Hún ræktar hvítlaukinn, sker og þurrkar hann undir sólinni. Við flysjum hann síðan og þurrkum hann meira undir sólinni, hreinsum og mölum. Allt ferlið er gert í höndunum frá ræktun til pökkunar. Ímyndaðu þér! Það er svo erfitt að taka húðina af hvítlauknum með höndunum, það krefst mikillar þolinmæði.“ Safa Jemai.
Stofnandi og aðaleigandi Mabrúka heitir Safa Jemai og er frá Túnis. Hún flutti til Íslands árið 2018 til að stunda nám við Háskóla Íslands en ákvað að hefja innflutning á kryddum frá sínu heimalandi því hún saknaði ferska bragðsins af kryddunum í Túnis. Safa stofnaði Mabrúka með móður sinni, sem býr í Túnis, og framleiðir kryddin heima hjá sér frá grunni.
Mæðgurnar Mabruka og Safa í Túnis.
Varan
Innihald: 100% malaður hvítlaukur
Þyngd: 40 g
Framleiðsluland: Túnis. Vörunni er pakkað í Túnis og send til Íslands.