Lýsing
Kartöflur frá Seljavöllum í Hornafirði.
5 kg af Helgu. Kílóverð 508 kr.
Bökunarkartöflur (allar stærri en 60 mm)
Kartöflurnar frá Seljavöllum koma í einum netapoka. Best er að geyma þær á svölum og myrkum stað.
Afhending
Kartöflurnar úr Hornafirði eru sendar til Reykjavíkur einu sinni í viku og afhentar síðdegis á fimmtudögum á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47.
Kannt þú að baka Hasselback kartöflur?
Stóru kartöflurnar frá Seljavöllum henta vel til þess að útbúa Hasselback-kartöflur. Nanna Rögnvaldardóttir fjallar um Hasselback-kartöflurnar og kennir okkur að gera þær hér.
Kartöfluafbrigðið Helga
Helga er stökkbreytt afbrigði af tegundunum Gullauga og Eyvindi. Helgan er hnöttótt en stundum dálítið aflöng. Hún er með rauðbleikt hýði og gul að innan. Helgan er þurrefnarík og margir telja hana bestu íslensku matarkartöfluna.
Helga er talin hafa myndast vegna stökkbreytingar á Gullauga og svipar mjög til þess nema hvað hýðið er rautt. Helga Gísladóttir húsfreyja í Unnarholtskoti í Hrunamannahreppi fann um 1930 rauðleitar kartöflur í garði þar sem hún ræktaði afbrigðin Eyvind og Gullauga. Hún tók þessar kartöflur frá og ræktaði upp af þeim nýtt afbrigði sem er nefnt eftir henni.
Bændurnir
Bændurnir Hjalti Egilsson og Birna Jensdóttir á Seljavöllum í Nesjum í Hornafirði hafa getið sér gott orð fyrir kartöflurækt. Þau eru rækta kartöflur á rúmum 8 hekturum lands. Hluti af görðunum er undir ábreiðum svo kartöflurnar vaxi hraðar og komi fyrr á markað. Hornafjörðurinn hefur mikla sérstöðu í íslenskri kartöflurækt þar sem bændur hafa passað upp á að vera eingöngu með eigið útsæði. Þannig hafa þeir náð að halda ýmsum kartöflusjúkdómum víðs fjarri í gegnum árin.
Hjalti Egilsson bóndi á Seljavöllum. Myndir / TB
Byggingar kartöflubændanna á Seljavöllum í Nesjum.
Varan
Kælivara. Geymist á svölum og skuggsælum stað.
Innihald: 1 x 5 kg kg af stórum kartöflum, Helgur.
Upprunaland: Ísland
Framleiðandi: Seljavallabúið
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.