Skip to content Skip to footer

Saltfiskur – léttsaltaður þorskur í bitum – 10 kg

18.130 kr.

10 kg af léttsöltuðum saltfiskbitum í einum kassa. Þorskur sem veiddur er af dagróðrabátum sem gera út frá Drangsnesi. Lausfryst og bitarnir því ekki fastir saman. Fjársjóður í frystikistunni!

1 x 10 kg kassi af söltuðum þorskflökum í bitum með roði. Bitar á bilinu 75-110 g.

Frystivara. Verð aðeins 1.813 kr./kg. Kassinn kostar 18.130 kr.

Fiskurinn er afhentur hjá Matlandi á Hrísateig 47 miðvikudaginn 29. október eftir kl. 14.00. Við sendum SMS þegar varan er tilbúin til afgreiðslu. Keyrum út á höfuðborgarsvæðinu og sendum með Samskip um allt land.

Flokkar: , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:67037

Lýsing

Afhending miðvikudaginn 29. okt.

Vinnslan

Fiskvinnslan Drangur ehf. var stofnuð árið 2000 af útgerðarmönnum á Drangsnesi ásamt Kaldrananeshreppi, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, Byggðastofnun, einstaklingum á Drangsnesi og öðrum sem létu sig málið varða. Hluthafar voru ríflega 30 í upphafi.

Fiskvinnslan Drangur ehf. er framleiðslufyrirtæki í matvælaiðnaði sem vinnur afurðir úr bolfiski og þjónustar báta sem landa afla sínum á Drangsnesi.

Helstu afurðir fyrirtækisins eru saltaður flattur þorskur, léttsöltuð fryst þorskflök og -bitar, fersk og frosin ýsuflök, ásamt söltuðum grásleppuhrognum. Fyrirtækið er staðsett á Drangsnesi við Steingrímsfjörð.

Það er stefna Fiskvinnslunnar Drangs ehf. að afurðir fyrirtækisins uppfylli ströngustu kröfur um gæði, hollustu og heilbrigði. Til þess að ná þessu markmiði er lögð áhersla á skilvirkt gæðakerfi og öfluga fræðslu og þjálfun starfsfólks.

Eldun

Þíðið fiskinn. Suða í vatni: Hitið vatnið upp að suðu en látið það ekki krauma. Setjið bitana út í heitt vatnið og hafið þá þar í 6-8 mínútur. Þykkari bitar geta tekið allt að 10 mínútur. Ekki sjóða of lengi því þá verður fiskurinn þurr.

Fjölmargar saltfiskuppskriftir er að finna á netinu, t.d. hér hjá Byggðasafni Vestfjarða.

Innihaldslýsing

Beinlaus þorskflök með roði, skorin í bita, um 75-110 g
Saltinnihald: 2,5% – Glas 8-10%
Léttsaltað og tilbúið í pottinn

Frystivara.

Gæti innihaldið smábein. Geymist við -18°C.

Næringargildi í 100 g.:

Orka 343 kJ/82 kkal
Fita 0,7 g
-þar af mettuð 0,1 g
Kolvetni 0 g
-þar af sykurtegundir 0 g
Prótein 18 g
Salt 2,5 g

Aðrar upplýsingar

Saltfiskurinn frá Drangsnesi er frystivara.

Innihald: Saltfiskur í bitum. 10 kg í kassa.
Upprunaland: Ísland
Veiddur og unninn á Íslandi.
Framleiðandi: Fiskvinnslan Drangur ehf. Aðalbraut 30, 520 Drangsnesi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Þér gæti einnig líkað við…