Lýsing
Piparinn frá Mabrúka inniheldur hágæða hráefni frá Túnis. Öll hráefnin í kryddunum frá Mabrúka eru handtínd, skoðuð og hreinsuð og síðan möluð samkvæmt gömlum hefðum. Alls eru 65 g af piparkornum í hverjum pappírspoka.
„Svarti piparinn okkar er sérstaklega ferskur. Mamma velur hann sjálf til þess að passa upp á gæðin. Allt ferlið er gert í höndunum.“ Safa Jemai.
Stofnandi og aðaleigandi Mabrúka heitir Safa Jemai og er frá Túnis. Hún flutti til Íslands árið 2018 til að stunda nám við Háskóla Íslands en ákvað að hefja innflutning á kryddum frá sínu heimalandi því hún saknaði ferska bragðsins af kryddunum í Túnis. Safa stofnaði Mabrúka með móður sinni sem býr í Túnis og framleiðir kryddin heima hjá sér frá grunni.

Mæðgurnar Mabruka og Safa í Túnis.
Varan
Innihald: 100% svartur pipar, ómalaður
Þyngd: 65 g
Framleiðsluland: Túnis. Vörunni er pakkað í Túnis og send til Íslands.


