Skip to content Skip to footer

Auka-grænmetiskassi #50

5.260 kr.

Matland og íslenskir garðyrkjubændur bjóða upp á ferskt grænmeti í einum kassa. Kassinn fer í dreifingu fimmtudaginn 12. desember. 

Auka-grænmetiskassi #50:

  • Rauðkál frá Sólskins, 2 litlir hausar
  • Lífrænar gulrætur frá Akri Organic, 500 g x 2 pk
  • Tómatar frá Friðheimum, 500 g
  • Agúrka frá Gufuhlíð, 2 stk.
  • Hvítkál frá Garðyrkjustöð Sigrúnar, 2 litlir hausar
  • Rósasalat frá Hveratúni, 2 hausar

Athugið að myndin af kassanum er dæmi um samsetningu. Kassarnir eru alltaf mismunandi og fara eftir því sem er ferskast á markaðnum hverju sinni.

Afhending hjá Matlandi á Hrísateig 47, fimmtudaginn 12. desember, eftir kl. 15.00 (sjá nánari lýsingu neðar á síðunni um afhendingu). Keyrt út síðdegis og fram á kvöld til viðskiptavina sem kjósa heimsendingu. Sendum staka kassa út á land fyrir fasta upphæð, kr. 1.950, óháð magni. Upplagt að versla meira á Matlandi til þess að nýta ferðina.

Við sendum SMS til að minna viðskiptavini á að sækja sinn kassa.

Matland býður kassana með 5% afslætti til áskrifenda á höfuðborgarsvæðinu, Blönduósi, Hellu, Hvolsvelli, Ísafirði, Neskaupstað, Reykjanesbæ, Egilsstöðum, Sauðárkróki, Selfossi, Siglufirði, Vík, í Borgarnesi og hjá Pikkoló í Kópavogi og Reykjavík.

Ekki til á lager

Flokkar: , Vörunúmer:50456

Lýsing

Á Matlandi er boðið upp á grænmetiskassa frá íslenskum bændum. Úrvalið er breytilegt eftir því hvað er til hverju sinni en við auglýsum innihald í hverjum kassa með fyrirvara. Oft á tíðum eru einhverjar vörur í kassanum sem ekki er almennt að finna í stórmörkuðum, t.d. vegna lítillar framleiðslu.

Afhending

Grænmetiskassa #50 verður dreift síðla fimmtudags (eftir kl. 15.00) á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Matland sendir símaskilaboð (SMS) til kaupenda rétt áður en kassarnir eru klárir til afhendingar. Við keyrum kassana út síðdegis og um kvöldið til þeirra sem óska eftir heimsendingu. Verð fyrir heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu er 1.350 kr.

Þau sem búa utan höfuðborgarsvæðisins fá kassana senda með vöruflutningabílum Samskipa. Kassarnir eru þá til afgreiðslu á föstudögum á afgreiðslustöðum Samskipa um allt land. Verð fyrir sendingu með innanlandsdeild Samskipa er 1.950 kr.

Framleiðendurnir

Bændur sem framleiða grænmeti í kassa #50 eru flestir innan vébanda Sölufélags garðyrkjumanna. Upplýsingar um innleggjendur hjá SFG er að finna hér. Salatblanda kemur frá Lambhaga og kartöflur frá Seljavöllum í Nesjum.

Varan

Grænmetiskassi #50:

  • Rauðkál frá Sólskins, 2 litlir hausar
  • Lífrænar gulrætur frá Akri Organic, 500 g x 2 pk
  • Tómatar frá Friðheimum, 500 g
  • Agúrka frá Gufuhlíð, 2 stk.
  • Hvítkál frá Garðyrkjustöð Sigrúnar, 1 haus
  • Rósasalat frá Hveratúni, 2 hausar

Í kassanum eru sumar vörurnar í umbúðum og aðrar ekki. Matland vill lágmarka umbúðanotkun en stundum er grænmetið innpakkað til þess að varðveita gæði. Það getur komið fyrir að við tiltekt verði breytingar á innihaldi kassans, m.a. vegna þess að vara sé uppseld eða ekki til. Þá áskilur Matland sér að skipta viðkomandi vöru út fyrir aðra.

Upprunaland: Ísland
Pökkun og dreifing: Matland. Dreifing utan höfuðborgarsvæðisins er á vegum Samskipa.
Framleiðendur: Bændur innan vébanda Sölufélags garðyrkjumanna. Upplýsingar um innleggjendur hjá SFG er að finna hér.
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna eftir kl. 16 á fimmtudag: Afhendingarstaður Matlands, Hrísateig 47 í Reykjavík.

Þér gæti einnig líkað við…