Skip to content Skip to footer

Grænmeti í áskrift

Frá: 4.995 kr. / á mánuði

Matland og Sölufélag garðyrkjumanna bjóða upp á nýuppskorið grænmeti og rótarávexti í kassa. Kassarnir eru breytilegir eftir því sem er ferskast hverju sinni en yfirleitt eru tegundirnar á bilinu átta til ellefu. Þeir sem gerast áskrifendur geta valið um að fá vikulega kassa, á tveggja vikna fresti eða mánaðarlega.

Kassarnir eru afhentir á höfuðborgarsvæðinu milli 16.00-18.00 á fimmtudögum á afgreiðslustað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík og komið fyrir í dreifingarstöðvum Pikkoló í Kópavogi, við Hlemm og í Vatnsmýri í Reykjavík. Keyrt er út síðdegis og fram á kvöld til viðskiptavina sem kjósa heimsendingu. Einnig sent með vöruflutningum Samskipa um allt land. Afhendingarstaðir á föstudögum eru kjötbúð Villt & alið á Hellu, Sveitabúðin Una á Hvolsvelli, Aldan verslun í Vík í Mýrdal, SR-byggingarvörur á Siglufirði, Salt Bistro á Egilsstöðum, Apótekarastofan á Blönduósi, Blómaskúr Villu í Reykjanesbæ og GK-bakarí á Selfossi.

Til þess að fá kassa næsta fimmtudag (föstudag utan höfuðborgarsvæðisins) þarf að gerast áskrifandi fyrir kl. 15 á mánudegi.

Veljið tíðni sendinga og afhendingu hér undir.

VikulegaAðra hverja vikuMánaðarlega
Clear

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Vörunúmer:28447

Lýsing

Á Matlandi er boðið upp á áskrift að grænmetiskössum frá íslenskum bændum. Úrvalið er breytilegt eftir því hvað er til hverju sinni en við munum auglýsa innihald í hverjum kassa með fyrirvara. Oft á tíðum eru einhverjar vörur í kassanum sem ekki er almennt að finna í stórmörkuðum, t.d. vegna lítillar framleiðslu. Það getur komið fyrir að við tiltekt verði breytingar á innihaldi kassans, m.a. vegna þess að vara sé uppseld eða ekki til. Þá áskilur Matland sér að skipta viðkomandi vöru út fyrir aðra.

Áskrift

Viðskiptavinir geta valið um að fá vikulegan kassa, á tveggja vikna fresti eða mánaðarlega. Þeir sem eru í áskrift fá 5% afslátt og kostar hver kassi kr. 4.995. Heimsending á höfuðborgarsvæðinu kostar kr. 1.350. Sendingar á afhendingarstaði Samskipa um allt land kosta kr. 1.950. Kassar eru afhentir, keyrðir heim til kaupenda eða á flutningastöð Samskipa á fimmtudögum. Fyrir utan höfuðborgarsvæðið eru kassarnir afhendir á föstudögum.  Til þess að fá kassa næsta fimmtudag (föstudag utan höfuðborgarsvæðisins) þarf að gerast áskrifandi fyrir kl. 15 á mánudegi.

Matland dreifir grænmetiskössum á Blönduósi, Egilsstöðum, Hellu, Hvolsvelli, Reykjanesbæ, Selfossi, Siglufirði, Vík í Mýrdal og á þremur afhendingarstöðum Pikkoló á höfuðborgarsvæðinu. Til þess að fá kassa afhenta þar þarf að skrá sig í áskrift (ekki er hægt að velja staka kassa á þessum stöðum). Það er auðvelt að breyta henni á “þínu svæði” inni á vefnum okkar.

Matland afhendir grænmetiskassa á eftirtöldum stöðum:

  • Blönduós. Apótekarastofan, Aðalgötu 8, á föstudögum.
  • Egilsstaðir. Salt Bistro, Miðvangi 2-4, á föstudögum.
  • Hella. Villt og alið við Þingskála 4 á Hellu á föstudögum.
  • Hvolsvöllur. Sveitabúðin Una við Austurveg 4 á föstudögum.
  • Kópavogur. Pikkoló við Byko í Breidd. Skemmuvegur 2a. Eftir kl. 16.00 á fimmtudögum.
  • Reykjavík. Matland á Hrísateig 47, kl. 16.00 á fimmtudögum.
  • Reykjavík. Pikkoló við Hlemm, Rauðarárstígur, 101 Reykjavík. Eftir kl. 16.00 á fimmtudögum.
  • Reykjavík. Pikkoló í Vatnsmýri við Grósku, Ingunnargata 1, Reykjavík. Eftir kl. 16.00 á fimmtudögum.
  • Reykjanesbær. Blómaskúr Villu, Hafnargötu 54, Keflavík. Afhent á föstudögum.
  • Selfoss. GK-bakarí, Austurvegi 31b, á föstudögum.
  • Siglufjörður. SR-byggingavörur, Vetrarbraut 14, á föstudögum.
  • Vík í Mýrdal. Aldan verslun, Sunnubraut 14-16, á föstudögum.

Afhending á grænmetiskössum

Grænmetiskassarnir eru afgreiddir á höfuðborgarsvæðinu milli kl. 16.00-18.00 á hverjum fimmtudegi á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 og á stöðvum Pikkoló við Byko í Kópavogi, við Hlemm og Grósku í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Matland og Pikkaló senda SMS til kaupenda þegar kassarnir eru klárir til að minna á.

Þeir sem kjósa heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu fá kassann sendan síðdegis sama dag eða um kvöldmatarleytið.

Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins fá kassana afhenta á völdum afhendingarstöðum eða senda með flutningabílum á vöruafgreiðslur Samskipa. Kassarnir eru þá til afgreiðslu á föstudögum. Afhending í verslun Villt & alið á Hellu og í Sveitabúðinni Unu á Hvolsvelli, SR-byggingavörum á Siglufirði, Apótekarastofunni Blönduósi, Salt bistro á Egilsstöðum, Blómaskúr Villu í Keflavík, Öldunni í Vík og í GK-bakaríi á Selfossi er á föstudögum. Matland sendir SMS til að minna viðskiptavini á að ná í kassana sem mikilvægt er að sækja samdægurs.


Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir á Hverabakka. Hún framleiðir m.a. tómata, sellerí, blómkál og kúrbít. Mynd / TB

Varan

Grænmetiskassarnir sem eru í áskrift eru þeir sömu og seldir eru í lausasölu hér á Matlandi í hverri viku. Þeir sem skrá sig í áskrift fá 5% afslátt af kassanum (fullt verð er 5.260 kr.). Hægt er að segja áskriftinni upp með viku fyrirvara inni á “Mínum síðum” á Matlandi.

Á Matland.is tilgreinum við innihald hvers kassa 6 dögum fyrir afhendingu.


Dæmi:
Grænmetiskassi #2:

  • Lífrænar gulrætur frá Akri Organic, 500 g
  • Íssalat frá Heiðmörk, 1 haus
  • Tómatar frá Friðheimum, 500 g
  • Rófa frá Þórisholti, 1 stk.
  • Agúrka frá Gufuhlíð, 1 stk.
  • Piccolo-tómatar frá Friðheimum, 1 bikar
  • Hvítkál frá Garðyrkjustöð Sigrúnar, 150 g.
  • Sterkur eldpipar, Habanero, frá Heiðmörk,  70 g
  • Sveppir frá Flúðasveppum, 250 g askja
  • Rauðar kartöflur úr Þykkvabænum, 1 kg

Í kassanum eru sumar vörurnar í umbúðum og aðrar ekki. Matland vill lágmarka umbúðanotkun en stundum er grænmetið innpakkað til þess að varðveita gæði.

Athugið: Þegar fimmtudagar eru frídagar þá hnikast afhending á grænmetiskössum aftur til miðvikudags eða fram til föstudags. Við tilkynnum það með fyrirvara.

Upprunaland: Ísland
Pökkun og dreifing: Sölufélag garðyrkjumanna, Pikkoló og Matland. Dreifing utan höfuðborgarsvæðisins er á vegum Samskipa.
Framleiðendur: Bændur innan vébanda Sölufélags garðyrkjumanna. Upplýsingar um innleggjendur hjá SFG er að finna hér.
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna eftir kl. 16 á fimmtudögum: Afgreiðslustaður Matlands, Hrísateig 47 í Reykjavík. Pikkolóstöðvar við Byko Breidd í Kópavogi, við Hlemm og Grósku í Vatnsmýri í Reykjavík.
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna á föstudögum utan höfuðborgarsvæðisins: Afgreiðslustaðir Samskipa. Kjötbúð Villt & alið, Þingskálum 4 á Hellu. Sveitabúðin Una á Hvolsvelli, Austurvegi 4 og GK-bakarí á Selfossi, Austurvegi 31b. Aldan Verslun, Sunnubraut 14-16, Vík í Mýrdal og SR-byggingavörur, Vetrarbraut 14 á Siglufirði, Blómaskúr Villu, Hafnargötu 54, Keflavík, Salt Bistro á Egilsstöðum, Miðvangi 2-4 og Apótekarastofan á Blönduósi, Aðalgötu 8.

Frekari upplýsingar

Afhendingarmáti

Pikkoló – Hlemmur (Rauðarárstígur, 101 Reykjavík) + 850 kr., Sótt á Salt Bistro á Egilsstöðum + 990 kr., Sótt í Blómaskúr Villu í Reykjanesbæ + 990 kr., Sótt til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík, Höfuðborgasvæðið – Heimsending + 1.350 kr., Pikkoló – BYKO í Breidd (Skemmuvegur 2a, 200 Kópavogur) + 850 kr., Pikkoló – Vatnsmýri við Grósku (Ingunnargata 1, 102 Reykjavík) + 850 kr., Sótt á afgreiðslustaði Samskipa utan höfuðborgarsvæðisins + 1.950 kr., Sótt á Apótekarastofuna Blönduósi + 990 kr., Sótt í GK-bakarí á Selfossi + 990 kr., Sótt í Ölduna Verslun í Vík + 990 kr., Sótt í SR-byggingavörur á Siglufirði + 990 kr., Sótt í Sveitabúðina Unu á Hvolsvelli + 990 kr., Sótt í verslun Villt & alið á Hellu + 990 kr.

Tíðni

Vikulega, Aðra hverja viku, Mánaðarlega

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2024. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard