Skip to content Skip to footer
-17%

Næringin skapar meistarann

Original price was: 5.990 kr..Current price is: 4.990 kr..

Hvernig getur íþróttafólk hámarkað árangur sinn og náð jafnvel enn meiri færni í leik sínum? Geta breyttar áherslur í mataræði fært íþróttamanninn beint á toppinn og í hóp afreksíþróttafólks?

Þetta veit Elísa Viðarsdóttir, næringarfræðingur og fyrirliði Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu, sem með þessari aðgengilegu bók tekur saman hagnýtan og áhugaverðan fróðleik um næringu og heilnæmt mataræði  og deilir með lesendum girnilegum og einföldum uppskriftum. Elísa á að baki tæplega 200 leiki með meistaraflokki og yfir 40 leiki með A-landsliði kvenna. Hún veit að til þess að komast á toppinn í íþróttum skiptir mataræðið öllu máli. Rétt fæða breytir leiknum!

Flokkur: Vörunúmer:17109

Lýsing

Við fáum að auki innsýn í matarvenjur tólf landsþekktra íþróttamanna, þegar við fylgjum m.a. þeim Söru Björk Gunnarsdóttur, Björgvini Páli Gústavssyni, Martin Hermannssyni og Lovísu Thompson í gegnum leikdaginn.

Bókin geymir einfaldar og bragðgóðar uppskriftir með eingöngu fimm hráefnum í hverjum rétti sem tryggir að allir finna eitthvað við sitt hæfi.

Útgefandi: Sögur útgáfa.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Næringin skapar meistarann”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2024. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard