Skip to content Skip to footer
-6%

Ólífuolíukassinn frá Clemen – 4 stk. x 500 ml

Original price was: 9.960 kr..Current price is: 9.400 kr..

Komdu í bragðferðalag og prófaðu allar fjórar ólífuolíutegundirnar frá Búkonu. Hvaða olíu fellur þú fyrir?

Fjórar 500 ml flöskur í einum pakka.

Fáðu sent heim eða afhent á afgreiðslustað Matlands á Hrísateig 47 daginn eftir kaup. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar.

Gulldropinn – tilvalin til steikingar og á salatið: Kaldpressuð spænsk úrvalsjómfrúarolía, unnin úr Manzanilla-þrúgunni, sem unniðhefur til fjölmargra verðlauna. Fagurgræn með ríku ávaxtabragði og jurtakeim. Gott jafnvægi er í fersku bragði olíunnar og eftirbragðið rífur í.

Platínudropinn – tilvalin til steikingar: Kaldpressuð úrvalsjómfrúarolía, unnin úr blöndu af Manzanilla- og Morisca-þrúgunum. Milt ávaxtabragð þar sem léttir pipartónar og beiskja mynda gott jafnvægi. Blanda sem gleður bragðlaukana.

Lífræni dropinn – tilvalin í allt og til inntöku: Kaldpressuð úrvalsjómfrúarolía, unnin úr 100% lífrænu hráefni. Helstu þrúgur í blöndunni eru Verdial de Badajoz, Carrasqueña og Morisca, en notast er við ólífur af elstu trjánum sem sum eru meira en aldargömul. Frískleg olía með hnetueftirkeim.

Ávaxtadropinn – tilvalin á salatið: Kaldpressuð úrvalsjómfrúarolía, unnin úr Moriscaþrúgunni, með keim af þroskuðum quince-ávöxtum, anís, fíkjum og eplum. Margslungið bragð, þar sem sætleiki kallast á við örlítinn piparkeim og ávaxtaríkt eftirbragð.

Flokkar: , Vörunúmer:16896

Lýsing

Fjórar tegundir í boði

Búkona framleiðir fjórar tegundir af kaldpressaðri jómfrúarolíu í samstarfi við spænska fjölskyldufyrirtækið Aceites Clemen s.l. Framleiðslan fer fram í einu þekktasta landbúnaðarhéraði Spánar, Extremadura, og koma ólífurnar beint frá bændum í nágrenninu.

Margrét Jónsdóttir rektor á Bifröst hefur um árabil rekið fyrirtækið Mundo. Hún tók upp á því við samstarfsfólk sitt að flytja inn olífuolíur frá Spáni undir merkinu “Búkona”.  Margrét er fyrrum vararæðismaður Spánar og formaður spænsk-íslenska viðskiptaráðsins auk þess sem hún lauk doktorsprófi í spænsku máli og bókmenntum. Starf og áherslur Mundo hafa því ætíð verið undiráhrifum spænskrar menningar og matarvenja.

Ólífuolíuna flytur Mundo milliliðalaust til Íslands frá Clemen.

Meðfylgjandi myndir eru frá Extremadura þaðan sem Búkonuolíurnar eiga rætur sínar að rekja.

 

Myndir / Margrét Jónsdóttir

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ólífuolíukassinn frá Clemen – 4 stk. x 500 ml”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2024. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard