Lýsing
Afhending miðvikudaginn 29. okt.
Vinnslan
Fiskvinnslan Drangur ehf. var stofnuð árið 2000 af útgerðarmönnum á Drangsnesi ásamt Kaldrananeshreppi, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, Byggðastofnun, einstaklingum á Drangsnesi og öðrum sem létu sig málið varða. Hluthafar voru ríflega 30 í upphafi.
Fiskvinnslan Drangur ehf. er framleiðslufyrirtæki í matvælaiðnaði sem vinnur afurðir úr bolfiski og þjónustar báta sem landa afla sínum á Drangsnesi.
Helstu afurðir fyrirtækisins eru saltaður flattur þorskur, léttsöltuð fryst þorskflök og -bitar, fersk og frosin ýsuflök, ásamt söltuðum grásleppuhrognum. Fyrirtækið er staðsett á Drangsnesi við Steingrímsfjörð.
Það er stefna Fiskvinnslunnar Drangs ehf. að afurðir fyrirtækisins uppfylli ströngustu kröfur um gæði, hollustu og heilbrigði. Til þess að ná þessu markmiði er lögð áhersla á skilvirkt gæðakerfi og öfluga fræðslu og þjálfun starfsfólks.

Innihaldslýsing
Ýsa með roði og beini, um 200-500 g flök
Frystivara.
Geymist við -18°C.
Næringargildi í 100 g.:
Orka 344 kJ/82 kkal
Fita 0,6 g
-þar af mettuð 0,1 g
Kolvetni 0 g
-þar af sykurtegundir 0 g
Prótein 18,9 g
Aðrar upplýsingar
Ýsan frá Drangsnesi er frystivara.
Innihald: Ýsa með roði og beini. 10 kg í kassa.
Upprunaland: Ísland
Veiddur og unninn á Íslandi.
Framleiðandi: Fiskvinnslan Drangur ehf. Aðalbraut 30, 520 Drangsnesi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is






