Skip to content Skip to footer

Litli pakkinn með anguskjöti frá Stóra-Ármóti

9.710 kr.

Matland býður upp á pakka með kjöti af 100% hreinum Angusgripum frá nautgriparæktarstöðinni á Stóra-Ármóti. Hreint kjöt án allra aukaefna. Kjötið er frosið.

  • 1 pk hamborgarar, 20-25%, 140 g, 5 stk.
  • 2 pk nautahakk, 20-25%, 2 x 500 g, 1 kg. (Ath. Nautahakkið er frá Gunnbjarnarholti af Angus-holdablendingum þar sem hakkið frá Stóra-Ármóti er uppselt.)
  • 1 pk snitsel, 500 g (á bilinu 3-4 sneiðar)
  • 1 pk gúllas, 500 g

Samtals 2,7 kg af kjöti. Verð fyrir allan pakkann er 9.710 krónur.

Kjötið er vel hangið en það fékk 16 daga í meyrnun áður en það var unnið. Frystivara.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Lýsing

Hreint anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa og Hvammi í Ölfusi.

Frystivara.

Hreinræktaður Aberdeen Angus

Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus kúm frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.

Gripirnir voru látnir hanga í 16 daga til meyrnunar áður en þeir voru unnir í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.

Angus er kjötframleiðslukyn

Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.


Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fullkomnustu aðstæður. Myndir / TB

Kjarnhiti nautgripakjöts

Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75° 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:

Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Pakki með hamborgurum, gúllasi, nautahakki og snitseli.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Pottsteik

866 g, 900 g, 1250 g, 1482 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Litli pakkinn með anguskjöti frá Stóra-Ármóti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…