Skip to content Skip to footer

Smoky Barbecue Aioli sósa – Stonewall

1.240 kr.

Matland býður upp á gæðasósurnar frá Stonewall. Ómissandi með steikinni eða á hamborgarann. “Smoky Barbecue Aioli” hentar vel á hamborgara eða sem sósa með grillkjöti.

305 g glerkrukka.

Matland afhendir vörur á Hrísateig 47 í Reykjavik daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Keyrum út til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu og sendum um allt land með Samskipum.

10 á lager

Flokkar: , Vörunúmer:57771

Lýsing

Varan

Stonewallsósa – Smoky Barbecue Aioli

Stonewall Kitchen eru hágæða amerískar sælkeravörur. Fyrirtækið var stofnað af Jim Stott og Jonathan King árið 1991. Þeir byrjuðu að selja heimagerðar sultur á bændamarkaði í Portsmouth, New Hampshire til vina og vandamanna. Strax á fyrsta degi slógu sulturnar þeirra í gegn og hjólin byrjuðu að snúast. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag selja þeir undir vörumerki sínu Stonewall Kitchen fjöldann allan af sælkeravörum sem margar hverjar hafa unnið til verðlauna í sínum flokki. Fyrirtækið varð fyrst þekkt  fyrir sulturnar sínar en í dag er það ekki síður þekkt pastasósur, salsa, salatdressingar, aioli, kex og margt fleira.

Næringargildi í 100 g eða 100 ml:
Orka: 2472 kJ, 600 kkal
Fita: 63 g., þar af mettaðar fitusýrur 3,1 g
Kolvetni: 7,5 g
Þar af sykur 6,3 g
Trefjar: 0,4 g
Prótein: 2,2 g
Salt: 1,7 g

Innihald: Canolaolía, hlyns-chipotle sósa (vatn, hreinn reyrsykur, tómatpasta, púðursykur, edik (hvítt), tómatar, hlynsíróp, melassi, sojasósa (vatn, hveiti, sojabaunir, salt), þurrkaður hvítlaukur, salt, krydd, malaður chili-pipar, þurrkaður laukur, Dijon-sinnep (edik, vatn, sinnepsfræ, salt, hvítvín, sítrónusýra, túrmerik, vínsteinsýra, krydd), rautt paprikuduft, xanthan-gúmmí, karríduft (krydd, túrmerik, þurrkaður hvítlaukur), ristaður hvítlaukur, chipotle-pipar, sítrónusýra), söltuð egg (heil egg, salt), edik (hvítt), Dijon-sinnep (edik, vatn, sinnepsfræ, salt, hvítvín, sítrónusýra, túrmerik, vínsteinsýra, krydd), eplasídrueedik, piparsósa (cayenne-pipar, edik, vatn, salt, náttúrulegt bragðefni, hvítlaukur), sinnepsduft, laukduft, chipotle-pipar, reykur í vökvaformi (vatn, náttúrulegt hickory-reykbragð), vatn, náttúrulegt bragðefni, tókóferól (náttúrulegt andoxunarefni), krydd.

Ofnæmisvaldar: EGG, SOJA, HVEITI

Upprunaland: Bandaríkin
Pökkun og dreifing: Stonewall – HB-heildverslun
Framleiðendur: Stonewall

Þér gæti einnig líkað við…