Skip to content Skip to footer

Þorskflök, roðlaus og beinlaus – 10 kg

29.630 kr.

Þorskflök, roðlaus og beinlaus í einum 10 kg kassa. Þorskurinn er veiddur af dagróðrabátum sem gera út frá Drangsnesi. Lausfryst og flökin því ekki föst saman.

1 x 10 kg kassi af þorskflökum.

Frystivara. Verð 2.963 kr./kg. Kassinn kostar 29.630 kr.

Fiskurinn er afhentur hjá Matlandi á Hrísateig 47 miðvikudaginn 29. október eftir kl. 14.00. Við sendum SMS þegar varan er tilbúin til afgreiðslu. Keyrum út á höfuðborgarsvæðinu og sendum með Samskip um allt land.

Flokkar: , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:67054

Lýsing

Afhending miðvikudaginn 29. okt.

Vinnslan

Fiskvinnslan Drangur ehf. var stofnuð árið 2000 af útgerðarmönnum á Drangsnesi ásamt Kaldrananeshreppi, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, Byggðastofnun, einstaklingum á Drangsnesi og öðrum sem létu sig málið varða. Hluthafar voru ríflega 30 í upphafi.

Fiskvinnslan Drangur ehf. er framleiðslufyrirtæki í matvælaiðnaði sem vinnur afurðir úr bolfiski og þjónustar báta sem landa afla sínum á Drangsnesi.

Helstu afurðir fyrirtækisins eru saltaður flattur þorskur, léttsöltuð fryst þorskflök og -bitar, fersk og frosin ýsuflök, ásamt söltuðum grásleppuhrognum. Fyrirtækið er staðsett á Drangsnesi við Steingrímsfjörð.

Það er stefna Fiskvinnslunnar Drangs ehf. að afurðir fyrirtækisins uppfylli ströngustu kröfur um gæði, hollustu og heilbrigði. Til þess að ná þessu markmiði er lögð áhersla á skilvirkt gæðakerfi og öfluga fræðslu og þjálfun starfsfólks.

Innihaldslýsing

Þorskflök, roðlaus og beinlaus
Frystivara.
Geymist við -18°C.

Næringargildi í 100 g.:

Orka 328 kJ/78 kkal
Fita 0,5 g
-þar af mettuð 0,1 g
Kolvetni 0 g
-þar af sykurtegundir 0 g
Prótein 18,1 g

Aðrar upplýsingar

Þorskurinn frá Drangsnesi er frystivara.

Innihald: Þorskflök, roðlaus og beinlaus. 10 kg í kassa.
Upprunaland: Ísland
Veiddur og unninn á Íslandi.
Framleiðandi: Fiskvinnslan Drangur ehf. Aðalbraut 30, 520 Drangsnesi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Þér gæti einnig líkað við…