Lýsing
Framleiðandinn
Vörurnar frá Fangst eru þekktar í Skandinavíu fyrir gæði. Rætur fyrirtækisins liggja í norrænni náttúru og matarmenningu. Markmið Fangst er að bjóða upp á bragðgóðar máltíðir og snarl úr því sem náttúran hefur upp á að bjóða, hvort heldur af landi, sjó eða úr norðlægum vötnum.
Framleiðandj Fangst segir mikilvægt að líta sér nær og taka örfá skref til baka. “Borðum meira af einföldum mat sem náttúran býður upp á og minna af unnum matvælum. Fangst er afurð okkar, unnin úr fiski og skelfiski af norðurslóðum, varðveitt í dósum.”
Varan
Færeyskur lax í lífrænni olíu með hafþyrni og sítrónuverbena.
Tegund (latneskt): Salmo Salar
Svæði: Norðaustur-Atlantshafið (FAO 27). Eldi við Færeyjar.
Nettóþyngd: 110 g
Innihald:
Lax (81%), kaldpressuð repjuolía* (18%), salt, hafþyrni* (0,4%), sítrónuverbena* (0,1%). Lífræn innihaldsefni nema 18,5% af innihaldinu.
*Lífrænt
Næringargildi pr. 100 g:
Orka: 1325 kJ/317 kcal
Fita: 28 g
– þar af mettaðar fitusýrur: 2,9 g
Kolvetni: 0 g
– þar af sykur: 0 g
Prótein: 16 g
Salt: 0,8 g
Geymsla:
Kælt eða við stofuhita. Í kæli eftir opnun.
Tillaga að framreiðslu:
Berið fram með góðu brauði og kreistið sítrónu yfir.
Upprunaland: Færeyjar
Pökkun: Skov í Danmörku
Innflutningur og dreifing: Cuisine ehf.
Söluaðili: Matland





