100% Angusborgarar frá Vindheimum – 10 stk x 140 g

5.990 kr.

Hamborgarar af 100% Angusnauti frá Neðri-Vindheimum í Hörgárdal í Eyjafirði. 12-15% fituinnihald gerir þá alla svo mátulega. Auðvelt að steikja á pönnu eða grilla, halda sér vel. Einfaldlega mjög bragðgóðir hamborgarar úr úrvalshráefni án allra aukaefna.

Gripurinn fékk að hanga í 14 daga fyrir vinnslu. Það þýðir meyrara kjöt en líka minni rýrnun á pönnunni eða grillinu.

Hamborgararnir eru frosnir og 5 saman í pakka. Alls 2 pk. x 700 g. Samtals 10 stk x 140 g = 1,4 kg.

Kílóverð: 4.279 kr. Stykkjaverð á hverjum hamborgara er 599 krónur.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Einnig hægt að fá afhent á Pikkolóstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Við sendum þér SMS þegar pöntunin er tilbúin. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

37 á lager

Má bjóða þér sósu eða annað?

Verð vöru:5.990 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir

Á Neðri-Vindheimum í Hörgárdal búa bændurnir Kristbjörg og Björn ásamt börnum sínum fjórum. Þar reka þau saman blandað bú með holdakúm, kindum og hrossum. Kýrnar eru allar hýstar yfir vetrartímann líkt og kindurnar. Við burð á vorin fara þær út með kálfa sína fram á haust. Bændurnir í Vindheimum hafa lagt mikla áherslu á að bæta kjötframleiðsluna á síðustu árum. Þau hafa markvisst byggt búskapinn upp með Angus-gripum sem gefur aukinn vaxtarhraða og meiri kjötgæði.


Holdagripir af Angus-kyni á Vindheimum í Hörgárdal.

Aðrar upplýsingar

Frystivara.

Innihald: Hamborgarar, 12-15% fituinnihald. Nautakjöt.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Vindheimum
Framleiðandi: Villt og alið ehf. á Hellu
Sláturhús: Sláturhús Norðlenska
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Magn

3kg., 4kg.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “100% Angusborgarar frá Vindheimum – 10 stk x 140 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…